Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Málsnúmer 1506052

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 186. fundur - 13.07.2015

Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 18.6 2015. Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna nýs rekstrarleyfis til sölu veitinga á krá og samkomusal/sölum að Vetrarbraut 8-10, Siglufirði.

Deildarstjóra tæknideildar falið að senda umsögn.