Óásjáleg hús og lóðir

Málsnúmer 1507015

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 186. fundur - 13.07.2015

Umræða var tekin um ástand húsa og lóða fyrirtækja og einstaklinga í Fjallabyggð. Nefndin felur tæknideild að senda eigendum umræddra fasteigna og lóða athugasemdir vegna umhirðu og hvetja til úrbóta.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 202. fundur - 06.07.2016

Samkvæmt bréfi frá Brynju Baldursdóttur dagsett 20. ágúst 2015 varðandi sjónmengun vegna vinnupalla við Grundargötu 3 var þar talað um að þeir yrðu teknir niður á árinu 2016.

Umræða var um ástand húsa í Fjallabyggð. Nefndin felur tæknideild að senda út áminningarbréf til húseigenda þar sem aðkallandi viðhalds er þörf.