Bæjarráð Fjallabyggðar

466. fundur 20. september 2016 kl. 08:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Evrópski sumarskólinn um sjálfbæra ferðaþjónustu

Málsnúmer 1609061Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ferðamálastofu, dagsett 31. ágúst 2016 í tengslum við fjórða evrópska sumarskólann um sjálfbæra ferðaþjónustu, sem haldin verður á Akureyri og í nágrannasveitarfélögum 5. til 9. október 2016. Gert er ráð fyrir að að Fjallabyggð verði afar sýnileg í dagskrá sumarskólans.
Óskað er eftir stuðningi bæjarfélagsins við Evrópska sumarskólann um sjálfbæra ferðaþjónustu 2016, með því að kosta kvöldverð fimmtudagskvöldið 6. október.

Jafnframt var lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, dagsett 16. september 2016.

Bæjarráð telur að erindið sé of seint fram komið og sér sér ekki fært að verða við því.

2.Áhrif nýrra húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

Málsnúmer 1608050Vakta málsnúmer

Á 463. fundi bæjarráðs, 30. ágúst 2018 var lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar á fjárhag og stjórnsýslu sveitarfélaga.
Bæjarráð óskaði eftir umsögn deildarstjóra félagsmála.

Í umsögn sem lögð var fyrir bæjarráð kemur fram að deildarstjóri óskaði eftir því að fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Íbúðalánasjóðs komi hingað á staðinn og haldi sérstaka kynningu á lögunum. Er gert ráð fyrir að þessi kynning fari fram í fyrstu viku október næstkomandi.
Á kynninguna verða boðaðir fulltrúar bæjarráðs, félagsmálanefndar auk starfsmanna bæjarins sem að þessum málum koma.

3.Staða framkvæmda - 2016

Málsnúmer 1608004Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson og fór yfir stöðu framkvæmda ársins ásamt áætlaðri lokastöðu.

Deildarstjóri mun mæta á næsta fund bæjarráðs og gerir frekari grein fyrir stöðu framkvæmda og viðhalds.

4.Rekstrarsamningur Síldarminjasafns Íslands og Fjallabyggðar

Málsnúmer 1409045Vakta málsnúmer

Steinunn María Sveinsdóttir vék af fundi undir þessu máli.
Lagt fram erindi frá Síldarminjasafni Íslands, dagsett 8. september 2016, vegna endurnýjunar á rekstrarsamningi milli þess og bæjarfélagsins.

Óskað er eftir fundi með forsvarsmönnum bæjarfélagsins í byrjun október til þess að fara yfir núverandi samning og ræða endurnýjun hans.

Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu.

5.Tjarnarborg sf - Ársreikningur 2015

Málsnúmer 1609032Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Tjarnaborgar fyrir árið 2015. Svo og skattframtal og staðfestingarbréf undirritað af bæjarstjóra.

6.Lóðarmörk Tjarnagötu 16, 18 og 20, Siglufirði

Málsnúmer 1603107Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Síldarleitinni til Innanríkisráðuneytisins, dagsett 13. september 2016, þar sem fram koma andmæli við athugasemdum Fjallabyggðar vegna kæru frá 22. júlí 2016.

7.Alþingiskosningar - 2016

Málsnúmer 1609004Vakta málsnúmer

Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 2. september sl., var lýst yfir ánægju með hve vel tókst til með tilraunaverkefni um utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna forsetakosninga fyrr í sumar hjá þeim 15 sveitarfélögum sem tóku þátt í verkefninu.
Stjórnin tekur undir tilmæli Innanríkisráðuneytisins um áframhald verkefnisins og hvetur sveitarfélög til þess að taka þátt í tilraunaverkefninu við alþingiskosningar síðar á þessu ári eftir því sem tök eru á og hver og ein sveitarstjórn ákveður.

Bæjarráð telur eðlilegt að utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Fjallabyggð verði með sama hætti og verið hefur, þ.e. hjá sýslumanni.

8.Fréttaskot Markaðsstofu Norðurlands

Málsnúmer 1609069Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fréttaskot í september frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem tíunduð eru verkefni og viðburðir, m.a.:
Flugráðstefna á Akureyri sem haldin var 13. september,
Ráðstefna Markaðsstofa landshlutanna um dreifingu ferðamanna sem haldin var í Reykjavík 15. september,
Auglýsing um tímabundið starf verkefnisstjóra ferðamannavegar Arcic Circle Route,
Matarhátíðin Local Food Festival á Norðurlandi sem verður haldin á Akureyri 30. september og 1. október og
Uppskeruhátíð 20. október í Skagafirði.

9.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017

Málsnúmer 1609039Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 6. september 2016, þar sem ráðuneytið gefur bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til 10. október n.k.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um fyrir Fjallabyggð.

10.Framlög vegna stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda

Málsnúmer 1609065Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.

Samkv. upplýsingum deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristins J. Reimarssonar eru engir tónskólanemar nú í Fjallabyggð sem falla undir ofangreindar reglur Jöfnunarsjóðs.

11.Ísland ljóstengt - Upplýsingar frá Mílu vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga

Málsnúmer 1609042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Mílu, dagsett 10. september 2016, þar sem fram kemur að fyrirtækið er tilbúið að veita sveitarfélögum ráðgjöf og upplýsingar varðandi alla þætti sem snúa að ljósleiðaravæðingu.

Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar um stöðu nettenginga í Fjallabyggð.

12.Trappa - Samningur - kynning

Málsnúmer 1609067Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samningi við Tröppu ehf um þjónustu talmeinafræðinga í fjarþjálfun og ráðgjöf vegna barna með tal- og málþroskafrávik.

Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála.

13.Upplýsingar um greiðslu sveitarfélaga vegna íþróttastarfs barna og ungmenna

Málsnúmer 1609066Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirspurn Ungmennasambands Íslands, dagsett 12. september 2016 um kostnað við íþróttastarf bæjarbúa, íþróttastyrki, niðurgreiðslu á íþróttastarfi og frístundakort vegna íþróttaiðkunar barna og ungmenna.

Bæjarráð samþykkir að vísa afgreiðslu fyrirspurnar til deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristins J. Reimarssonar.

14.Heitt vatn til húshitunar á Reykjum.

Málsnúmer 1608018Vakta málsnúmer

Á 465. fundi bæjarráðs, 16. september 2016, var tekin til umfjöllunar fyrirspurn frá Kristni E. Hrafnssyni um hvort bæjarfélagið geti sem landeigandi tryggt öllum sumarhúsaeigendum til jafns, heitt vatn til húshitunar á Reykjum í Ólafsfirði.
Fram kom að Norðurorka hefur ekki uppi áform um sérstaka nýtingu á heitu vatni á þessum slóðum.
Bæjarráð samþykkti að óska eftir umsögn frá deildarstjóra tæknideildar.

Bæjarráð frestar þessum dagskrárlið og felur deildarstjóra að óska eftir formlegri umsögn frá Norðurorku.

15.Endurnýjun á sjoppuskúr við knattspyrnuvöll

Málsnúmer 1609036Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sveini Andra Jóhannssyni varðandi endurnýjun á sjoppuskúr við knattspyrnuvöllinn í Ólafsfirði.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar.

16.Vetrarþjónusta við húsbíla

Málsnúmer 1608038Vakta málsnúmer

Á 26. fundi markaðs- og menningarnefndar, 15. september 106, var tekið fyrir erindi Ferðamálastofu sem hyggur á útgáfu á rafrænum grunni yfir þá ferðaþjónustuaðila sem bjóða húsbíla velkomna frá 15. sept. - 15. maí. Spurt er hvort Fjallabyggð hafi í hyggju að bjóða upp á þjónustu fyrir þessa aðila yfir vetrartímann.
Markaðs- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að tjaldsvæðin verði opin fyrir ferðamenn allt til 15. október 2016 svo framarlega sem veður leyfir. Einnig að áfram verði miðað við opnun 15. maí ár hvert.

Bæjarráð samþykkir lengri opnun yfir vetrartímann svo framarlega sem aðstæður leyfa.

17.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirfarandi fundargerð:

26. fundur markaðs- og menningarnefndar frá 15. september 2016.

Fundi slitið.