Bæjarráð Fjallabyggðar

279. fundur 27. nóvember 2012 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Málefni Hornbrekku - framkvæmdastjóri mætir á fundinn

Málsnúmer 1211041Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri Hornbrekku, Rúnar Guðlaugsson, gerði grein fyrir stöðu mála er varðar rekstur Hornbrekku og stöðu innan sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kanna lagalega stöðu stofnunarinnar áður en næstu skref eru ákveðin.

2.Beiðni um styrk

Málsnúmer 1211063Vakta málsnúmer

Stjórn Leikfélags Ólafsfjarðar óskar eftir styrkveitingu til félagsins, en félaginu láðist að sækja um á réttum tíma.
Bæjarráð hafnar umsókninni að þessu sinni.

3.Menntaskólinn á Tröllaskaga - Samningur við Akureyrarbæ

Málsnúmer 1112061Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá bæjarráði Akureyrarbæjar, þar sem fram kemur að ráðið felur bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að vinna að samkomulagi er varðar Menntaskólann á Tröllaskaga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að vinna að lausn málsins fyrir hönd Fjallabyggðar.

4.Ósk um endurskoðun tillagna um skiptingu byggðakvóta í Fjallabyggð

Málsnúmer 1211059Vakta málsnúmer

Bæjarráð telur ekki ástæðu til þess að breyta fyrri ákvörðun, sem samþykkt var samhljóða bæði í bæjarráði og bæjarstjórn.
Reglurnar eru almenns eðlis og í samræmi við það sem verið hefur í Fjallabyggð nokkur undanfarin ár.

5.Sjálfboðaliðar í verkefni árið 2013

Málsnúmer 1209076Vakta málsnúmer

Veraldarvinir hafa leitað eftir samstarfi til þess að vinna að ákveðnum verkefnum í sjálfboðavinnu. Þó svo að um sjálfboðaliðastarf sé að ræða fellur til nokkur kostnaður, bæjarráð telur því fé betur varið til vinnuskólans.
Bæjarráð óskar því ekki eftir vinnuframlagi Veraldarvina á næsta ári.

6.Uppsögn á starfi forstöðumanns Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar

Málsnúmer 1211070Vakta málsnúmer

Forstöðumaður bóka- og héraðskjalasafnsins hefur sagt upp störfum og óskar eftir starfslokum eins fljótt og auðið er.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa umrædda stöðu lausa til umsóknar og semja við forstöðumann um starfslok.

7.Grunnskóli Siglufirði, verkfræðihönnun

Málsnúmer 1211055Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar lagði fram tvo samninga um verkfræðihönnun viðbyggingar við Grunnskóla Fjallabyggðar, Siglufirði.

Við Verkfræðistofu Norðurlands að upphæð kr. 3.631.000.-.

Við Raftákn samkvæmt tilboði ráðgjafa að upphæð kr. 1.550.000.-.

Bæjarráð staðfestir samningana og felur bæjarstjóra að undirrita þá.

8.Fasteignasjóður

Málsnúmer 1105063Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá félagsmálastjóra þar sem fram kemur að félagsmálanefnd hefur fjallað um hugsanleg kaup á Lindargötu 2 en Fasteignarsjóður Jöfnunarsjóðs hefur boðið bæjarfélaginu eignina til kaups.

Þar kemur fram að nefndin telur heppilegra að leigja Lindargötu 2 af Jöfnunarsjóði eins og sakir standa.

Bæjarráð tekur undir niðurstöður nefndarinnar.

9.Uppsagnir starfsfólks hjá Siglunesi ehf og Útgerðarfélaginu Nesinu ehf

Málsnúmer 1211076Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar harmar mjög að þurft hafi að grípa til uppsagna hjá fyrirtækjunum Siglunesi hf og Útgerðarfélaginu Nesinu ehf.
Áðurnefndar uppsagnir hafa mikil áhrif á svæðinu, verði þær að veruleika.
Tapist 35 störf í Fjallabyggð hefði það sömu áhrif fyrir atvinnusvæðið og að 3.500 störf töpuðust á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarfulltrúar í Fjallabyggð voru í hópi 133 sveitarstjórnarmanna sem vöruðu við áhrifum hækkunar veiðigjalda á samfélagið í umsögn við frumvarpið síðastliðið vor. Í þeirri umsögn var ítrekað að veiðigjöldin væri fyrst og fremst landsbyggðarskattur.
Útgerðir í Fjallabyggð þyrftu að greiða um 850 milljónir í veiðigjöld, samkvæmt úttekt Daða Más Kristóferssonar hjá HÍ og Stefáns Gunnlaugssonar hjá HA, sem fjölluðu um frumvarpið.
Ljóst var að slíkar upphæðir yrðu ekki teknar úr samfélaginu án afleiðinga.
Það er von bæjarráðs Fjallabyggðar að horfið verði frá þessum gríðarlega auknu álögum í formi landsbyggðarskatts sem veiðigjöldin eru, svo að koma megi í veg fyrir að störfum á svæðinu fækki til frambúðar.

10.Fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1209099Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.

11.Bótakrafa vegna flugskýlis

Málsnúmer 1010006Vakta málsnúmer

Lagður fram úrskurður Matsnefndar eignarnámsbóta matsmál nr. 3/2012.

12.Samningur vegna reksturs Skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 1209098Vakta málsnúmer

Lagður fram undirritaður samningur við Leyningsás ses frá 19.11.2012.

13.Fyrirmynd að samþykkt um stjórn sveitarfélaga og auglýsing um ritun fundargerða

Málsnúmer 1211067Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Bæjarstjóra falið að vinna að tillögu að breytingum.

14.Þyrluskíðun í landi Fjallabyggðar

Málsnúmer 1211069Vakta málsnúmer

Upplýsingar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.