Bæjarráð Fjallabyggðar

583. fundur 27. nóvember 2018 kl. 16:30 - 17:50 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Framtíðarsýn og framkvæmdaráætlun Skíðasvæðisins í Tindaöxl

Málsnúmer 1810121Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti Kristján Hauksson formaður Skíðafélags Ólafsfjarðar þar sem hann fór yfir drög að fimm ára framkvæmdaáætlun SÓ.

Bæjarráð samþykkir að vísa drögum til deildarstjóra tæknideildar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála til úrvinnslu.

2.Bréf til Ríkisstjórnar Íslands - Flutningur Ríkisstofnana til Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811070Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að bréfi til Ríkisstjórnar Íslands fyrir hönd bæjarráðs þar sem þess er óskað að Rískisstjórn Íslands kanni möguleika á því að flytja ríkisstofnanir til Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að senda bréfið til odddvita ríkisstjórnarflokkana.

3.Erindi frá Trölla, hugmyndir um samstarf

Málsnúmer 1810051Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála varðandi fyrirkomulag er varðar útsendingu á bæjarstjórnarfundum.

Bæjarráð samþykkir að boða Gunnar Smára fyrir hönd Trölla.is á fund bæjarráðs.

4.Fjárhagsáætlun 2019

Málsnúmer 1810099Vakta málsnúmer

Farið var yfir lykiltölur við fjárhagsáætlun 2019.

Gerð var breyting á forsendum v.fasteignagjalda, vatnsskattur lækkar úr 0,32% í 0,31% og holræsagjöld voru lækkuð úr 0,33% í 0,32%.
Gjalddagar fasteignagjalda verða 10 í stað 8 eins og í nágrannasveitarfélögum.

Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2019 til seinni umræðu.

5.Ungmennaráð 2018-2019

Málsnúmer 1811069Vakta málsnúmer

Lögð fram tilnefning fulltrúa í Ungmennaráð Fjallabyggðar 2018-2019 ásamt samþykktum fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar.

Bæjarráð fagnar því að náðst hafi að manna Ungmennaráð.
Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála að yfirfara samþykkir ráðsins og koma með tillögur að nýjum samþykktum á næsta fund bæjarráðs.

6.Drög að leiðbeiningum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis sveitarfélaga

Málsnúmer 1811041Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra félagsmála þar sem fram kemur að Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að skýr aðgreining sé viðhöfð í stjórnsýslu sveitarfélaga á milli félagslegs íbúðarhúsnæðis og almennra leiguíbúða í eigu sveitarfélaga. Einnig að æskilegt væri að sveitarfélög setji sér sjálfstæðar reglur.

Bæjarráð felur félagsmálanefnd að taka Reglur um úthlutun leiguíbúða Fjallabyggðar til endurskoðunar þegar Reglur um úthlutun leiguíbúða félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga hafa tekið gildi.

7.Ósk um fyrirframgreiddan rekstrarstyrk

Málsnúmer 1811027Vakta málsnúmer

Á 582. fundi bæjarráðs samþykkti ráðið að fresta erindi Hestamannafélagsins Gnýfara um fyrirframgreiddan rekstarastyrk.

Bæjarráð samþykkir að boða forsvarsmenn Hestamannafélagsins Gnýfara á næsta fund bæjarráðs.

8.Mannamót 2019

Málsnúmer 1811024Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar varðandi þátttöku sveitarfélagsins í Mannamóti markaðsstofu landshlutanna sem fram fer á árinu 2019. Þar kemur m.a. fram að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofu landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Öllum er þó frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Fulltrúi Fjallabyggðar á Mannamóti 2019 myndi tryggja dreifingu upplýsingarita um þá afþreyingu og þjónustu sem í boði er með það að markmiði að kynna ferðaþjónustu og afþreyingu á svæðinu í heild. Einnig yrð dreift á staðnum dagskrá ársins 2019 þar sem taldir verða upp viðburðir í bæjarfélaginu allt árið.

Bæjarráð samþykkir að fela markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar að fara á Mannamót 2019 og kynna ferðaþjónustu og afþreyingu á svæðinu í heild í samráði við ferðaþjónustuaðila.

9.Fasteignagjöld á Aðalgötu 6 Siglufirði

Málsnúmer 1811061Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Ívars Ómars Atlasonar fh. Svanhóls ehf. eiganda fasteignarinnar að Aðalgötu 6 á Siglufirði. Þar sem óskað er eftir endurmati á fasteignagjöldum á húsinu vegna síðustu 5 ára með tilliti til söluverðs hússins í dag og síðustu ár. Í bréfinu kemur fram að húsið sé í afar slæmu ástandi.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að legga fyrir bæjarráð minnisblað fyrir næsta fund varðandi erindið.

10.Óskað eftir leyfi til að grafa tilrauna drenlögn

Málsnúmer 1811068Vakta málsnúmer

Jón Valgeir Baldursson vék af fundi undir þessum lið.

Lagt fram erindi frá Þorbirni Sigurðssyni dags. 19.11.2018 fyrir hönd Framfarafélags Ólafsfjarðar varðandi leyfi til að grafa tilrauna drenlögn í jörðu í landi sem Framfarafélagið hefur afnot af, vestan óss í Ólafsfirði.

Bæjarráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti og felur deildarstjóra tæknideildar að fylgjast með framgangi verkefnisins.

11.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019

Málsnúmer 1810063Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Atvinnuvega- og Nýsköpunarráðuneytinu dags. 23.nóvember 2018 um umsókn Fjallabyggðar um úthlutun byggðakvóta, fyrir fiskveiði árið 2018/2019 koma 300 þorskígildistonn til ráðstöfunar í Ólafsfirði og 300 þorskígildistonn til ráðstöfunar á Siglufirði.

Frestur til að skila inn tillögum er til og með 21. desember 2018.

Fundi slitið - kl. 17:50.