Ungmennaráð 2018-2019

Málsnúmer 1811069

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 583. fundur - 27.11.2018

Lögð fram tilnefning fulltrúa í Ungmennaráð Fjallabyggðar 2018-2019 ásamt samþykktum fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar.

Bæjarráð fagnar því að náðst hafi að manna Ungmennaráð.
Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála að yfirfara samþykkir ráðsins og koma með tillögur að nýjum samþykktum á næsta fund bæjarráðs.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 19. fundur - 04.12.2018

Aðal- og varafulltrúar í Ungmennaráði voru boðnir velkomnir á fundinn. Um er að ræða 1. fund á líðandi starfsári. Aðalfulltrúar kusu formann og varaformann úr sínum röðum. Formaður Ungmennaráðs starfsárið 2018-2019 er Jón Pétur Erlingsson og varaformaður er Helgi Már Kjartansson.

Áætlað er að funda einu sinni í mánuði og verður næsti fundur miðvikudaginn 9. janúar kl. 15:15.

Formaður tók við fundarstjórn.

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála fór yfir drög að uppfærðum samþykktum fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 584. fundur - 04.12.2018

Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda-, og menningarmála úrvinnslu málsins.