Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 927. fundur - 30.07.2026

Bæjarstjóri greindi frá vinnu við fjárhagsáætlun og kynnti frumdrög að rammaáætlun fyrir árið 2027 að gefnum fyrirliggjandi forsendum.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra kynninguna á frumdrögum fjárhagsáætlunar 2027.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10.09.2026

Fyrir liggur yfirlit um stöðu rekstrarreiknings í lok ágúst 2026 og gróf útkomuspá miðað við stöðu. Jafnframt liggur fyrir yfirlit um stöðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 miðað við mismunandi forsendur sem og yfirlit yfir hugsanlegar framkvæmdir og fjárfestingar sem þarf að fara í á næsta ári.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir framlögð gögn og mismunandi sviðsmyndir vegna breytinga á gjaldskrám.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Fyrir liggur tillaga meirihluta bæjarráðs um eftirfarandi forsendur við rammaáætlun fjárhagsáætlunar 2027:

Álagsprósenta útsvars hækki úr 14,93% í 14,97% líkt og hún er hjá þorra sveitarfélaga á Íslandi
Álagningarhlutfall fasteignaskatts, lóðarleigu, vatnsgjalds og fráveitugjalds verði óbreytt frá fyrra ári.
Almennt hækki gjaldskrár um 2,5%

Samþykkt
Með því að halda hækkun á gjaldskrá í lágmarki og töluvert undir núverandi verðbólgu og verðbólguvæntingum þá leggur Fjallabyggð sitt lóð á vogarskálarnar að ná verðbólgu niður á næstu misserum.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.