Bæjarstjórn Fjallabyggðar

277. fundur 22. október 2026 kl. 17:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Jóhann K. Jóhannsson forseti
  • Helgi Jóhannsson 1. varaforseti
  • Pálmi Blængsson 2. varaforseti
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalfulltrúi
  • Kristinn Kristjánsson aðalfulltrúi
  • Viktor Freyr Elísson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 934. fundur - 24. september 2026

Málsnúmer 2609009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026

Málsnúmer 2609015FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 14 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 4 (Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026-2030) sem er sér dagskrárliður á fundinum og liðum 2 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) og 5 (Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029) sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tók Tómas Atli Einarsson.

Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu á lið 2 í fundargerðinni. Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 5 atkvæðum, Tómas Atli Einarsson sat hjá við afgreiðslu.

Liður 5 samþykktur með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 2, 4 og 5 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 2.2 2510036 Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026 Fyrir liggja svör frá meirihluta bæjarráðs vegna spurninga frá fulltrúa D- listans á bæjarstjórnarfundi 17. september s.l. og eru þau birt með fundargerðinni.

    Tómas Atli Einarsson fulltrúi D-lista bókaði eftirfarandi:

    "Fulltrúi D-lista telur svör meirihlutans ekki skýra hvaða gögn og samanburður studdu tillöguna um eigin rekstur skíðasvæðisins 3. september.

    Tilvísun til ástands svæðisins sýnir ekki ein og sér hvers vegna sú leið hafi verið óumflýjanleg, enda kemur fram að rekstraráætlun og mat á fjárþörf hafi verið enn í vinnslu þegar svörin voru samin.

    Jafnframt er staðfest að ákveðið var að leggja lögfræðiráðgjöfina hvað varðar jafnræði bjóðenda ekki fram á fundinum og að formaður synjaði frekari bókun, án þess að tiltekin regla sé nefnd til stuðnings. Samþykki mitt á frágangi fundargerðar fól ekki í sér samþykki á efni bókunar meirihlutans eða afturköllun athugasemda við málsmeðferðina. Óskað er eftir að gögn um forsendur tillögunnar verði lögð fram og leiðréttingarkrafan fái efnislega, rökstudda afgreiðslu."



    Bókun fundar Samþykkt með 5 atkvæðum. Pálmi Blængsson vék af fundi og Tómas Atli Einarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
  • 2.5 2605038 Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026 Bæjarráð þakkar fyrir framlögð gögn og heimilar sviðsstjóra að auglýsa opið útboð í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 936. fundur - 8. október 2026

Málsnúmer 2610002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1 (Farsældarráð SSNE) og 2 (Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025-2026) sem bornir eru upp sérstaklega og lið 3 sem er sérstakur dagskrárliður á fundinum.
Samþykkt
Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1 (Farsældarráð SSNE) og 2 (Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025-2026) sem bornir eru upp sérstaklega og lið 3 (Viðauki við fjárhagsáætlun 2026) sem er sérstakur dagskrárliður á fundinum.

Til máls tóku Tómas Atli Einarsson og Helgi Jóhannsson.

Liður 1 samþykktur með 7 atkvæðum.

Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu á lið 2 í fundargerðinni. Liður 2 samþykktur með 6 atkvæðum.
  • 3.1 2603031 Farsældarráð SSNE
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 936. fundur - 8. október 2026 Bæjarráð þakkar þeim Þorleifi og Elvu kærlega fyrir yfirferðina á áætluninni. Bæjarráð samþykkir áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 og bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.2 2504017 Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 936. fundur - 8. október 2026 Fyrir liggur að þjónustusamningur við Fjallgarða ehf. rennur út um komandi áramót. Bæjarráð felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að ræða við Fjallgarða ehf. um stöðuna á svæðinu og nauðsynlegar framkvæmdir á næsta ári. Bókun fundar Samþykkt með 6 atkvæðum. Pálmi Blængsson vék af fundi.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 937. fundur - 20. október 2026

Málsnúmer 2610003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030) sem er sérstakur dagskrárliður á fundinum.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 336. fundur - 22. september 2026

Málsnúmer 2609010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 2 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 13. fundur - 23. september 2026

Málsnúmer 2609012FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson, Helgi Jóhannsson, Kristinn Kristjánsson og Viktor Freyr Elísson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23. september 2026

Málsnúmer 2609008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 14 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 165. fundur - 1. október 2026

Málsnúmer 2609018FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 2 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson og Kristinn Kristjánsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 36. fundur - 29. september 2026

Málsnúmer 2609006FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 12. fundur - 8. október 2026

Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við rekstraráætlun vegna ársins 2026 vegna þriggja gjaldaliða, þ.e. fyrirhugaðs snjómoksturs haustið 2026 þar sem mikill kostnaður var við snjómokstur s.l vor, holræsahreinsun í Ólafsfirði sem er mun umfangsmeiri er gert hafði verið ráð fyrir og loks fyrir viðhald á tækjabúnaði, snjótroðurum og skíðalyftum á skíðasvæðinu í Skarðsdal. Á móti auknum kostnaði er lögð til lækkun á kostnaði við opin svæði og viðhald húseigna sem ekki gafst ráðrúm til þess að framkvæma í sumar.
Hækkun gjaldaliða í tillögunni er samtals 56 milljónir króna og lækkun á móti 13 milljónir þannig að heildaráhrif eru um 43 milljónir króna í aukinn rekstrarkostnað sem breytir niðurstöðu rekstraráætlunar sem því nemur. Tillagan var samþykkt í bæjarráði Fjallabyggðar þann 8.október s.l.
Samþykkt
Tillaga um viðauka við rekstraráætlun vegna ársins 2026 samþykkt með 7 atkvæðum.
Fylgiskjöl:

12.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Meðfylgjandi er rammaáætlun á allar deildir.

Þórir Hákonarson, skrifstofustjóri, kynnti helstu niðurstöður úr drögum af fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2027 er lögð fram til fyrri umræðu ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030. Fjárhagsáætlunin er sett fram í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B-hluta. Í A-hluta er Aðalsjóður auk Þjónustumiðstöðvar og Eignasjóðs. Í B-hluta eru Veitustofnun, Hafnarsjóður og Íbúðasjóður auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð bæjarfélagsins. Hornbrekka er ekki lengur hluti af áætlunum B-hluta. Áætlunin sýnir rekstraráætlun, áætlaðan efnahagsreikning og sjóðsstreymi fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 gera ráð fyrir að rekstrartekjur Fjallabyggðar nemi 4.636 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B-hluta, þar af eru rekstrartekjur A hluta áætlaðar 4.280 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru áætluð 4.328 m.kr., þar af A-hluti 4.088 m.kr.

Framlögð áætlun byggir á eftirfarandi meginforsendum:

Útsvarsprósenta hækkar úr 14,93% í 14,97%
Hækkun útsvarstekna er áætluð 4% frá áætlun 2026 en um 5,6% hækkun frá útkomuspá fyrir árið 2026.
Álagningarhlutföll fasteignaskatta, lóðarleigu, vatns- og fráveitugjalda eru óbreytt en álagningarhlutföll voru lækkuð nokkuð á milli áranna 2025 og 2026.
Sorphirðugjöld hækka úr kr. 85.000 í kr. 87.125 eða um 2,5% en gjöldin lækkuðu verulega á milli áranna 2025 og 2026.

Gjaldskrár og þjónustugjöld Fjallabyggðar hækka að jafnaði um 2,5% frá 1. janúar en hins vegar er gert ráð fyrir því að öll innkaup til Fjallabyggðar í þjónustu og vörum hækki um 4% sem er í samræmi við verðbólguspá en verðbólga stendur nú í 6% og þarf að lækka býsna hratt til þess að þessar forsendur standi.

Varðandi launakostnað liggja forsendur nokkuð vel fyrir þar sem kjarasamningar gilda almennt út árið 2027 en rétt er að vekja athygli á því að nú stendur yfir virðismat hjá kennurum og er áætlað að bráðabirgða niðurstaða úr því mati liggi fyrir fljótlega. Niðurstaðan gæti þýtt töluverða breytingu en að líkindum þó ekki fyrr en í lok árs 2027 og hugsanlega ekki fyrr en á árinu 2028.

Afsláttur af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verður að hámarki kr. 110.000 og fylgir almennri launaþróun.
Tekjumörk fyrir afslætti hækka í samræmi við launavísitölu.

Áætlað er að frístundastyrkur fyrir börn á aldrinum 4 - 18 ára hækki í kr. 60.000 úr kr. 52.000 og með því aukin þátttaka Fjallabyggðar í íþrótta - og frístundastarfi barna og unglinga.

Rekstrarniðurstaða
Rekstrarhagnaður A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 308 m.kr. Afskriftir nema 274 m.kr. og fjármagnstekjur umfram fjármunagjöld 4 m.kr. Rekstrarhagnaður samstæðunnar í heild A- og B-hluta er áætlaður samtals um 38 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 192 m.kr. Afskriftir nema 210 m.kr. Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld nema 30 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er því áætluð jákvæð um 12 milljónir króna.

Eignir og skuldir
Eignir Fjallabyggðar eru áætlaðar í árslok 2026, 6.900 m.kr., þar af eru eignir A-hluta 5.505 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 2.881 m.kr, hefðbundnar langtímaskuldir eru aðeins 121 milljónir sem eru afar litlar skuldir í öllum samanburði en lífeyrisskuldbindingar eru hins vegar ríflega 2 milljarðar.

Eigið fé er áætlað 4.968 m.kr í árslok hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall 63,3%. Eigið fé A-hluta er áætlað 4.087 m.kr. Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A-hluta verði 439m.kr. og að veltufé frá rekstri samstæðunnar A- og B-hluta verði samtals 542 m.kr.

Skuldaviðmið Fjallabyggðar samkvæmt reglugerð 502/2012 verður samkvæmt áætlun 35,8% en hámarks skuldaviðmið er 150%.

Fyrir árin á eftir er rekstrarniðurstaða samstæðunnar áætluð jákvæð fyrir árið 2028 um 140 m.kr., fyrir árið 2029 um 176 m.kr. og fyrir árið 2030 um 216 m.kr.

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri fyrir árið 2028 verði 577 m.kr., fyrir árið 2029 verði það 614 m.kr. og fyrir árið 2030 verði það 653 m.kr.

Gera má ráð fyrir breytingum á milli umræðna þegar betur liggja fyrir tillögur í fjárfestingar og hugsanlega lántöku vegna knatthúss. Ítarleg greinargerð með fjárhagsáætlun verður lögð fram tímanlega fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn sem áætluð er 26. nóvember 2026.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að vísa fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn og til úrvinnslu og undirbúnings á milli umræðna í nefndum og ráðum.

13.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026 - 2030

Málsnúmer 2605056Vakta málsnúmer

Fyrir liggur eftirfarandi tillaga að fulltrúum í stýrihóp um heilsueflandi samfélag:

Fulltrúar í Stýrihópi um heilsueflandi samfélag 2026-2030

Leik- og grunnskóli:
Aðalmaður: María Sölvadóttir.
Varamaður: Björk Óladóttir.

Heilsugæsla:
Aðalmaður: Harpa Hlín Jónsdóttir.
Varamaður: Elfa Sif Kristjánsdóttir.

Félög eldri borgara:
Aðalmaður: Jónína Kristjánsdóttir.
Varamaður: Hafdís Elísabet Jónsdóttir.
Aðalmaður: Ólafur Þór Ólafsson.
Varamaður: Brynhildur Bjarkadóttir.

Íþróttahreyfingin (UÍF)
Aðalmaður: Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir.
Varamaður: Kristján Hauksson.

Fjallabyggð
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi tillögu á fundi sínum 2.október og vísaði til afgreiðslu bæjarstjórnar.


Fyrir liggur tillaga að skipan varaformanna í eftirtaldar fastanefndir Fjallabyggðar:

Velferðarnefnd:
Varaformaður: Auður Hlíðdal Magnúsdóttir H-lista

Fræðslu- og frístundanefnd:
Varaformaður: Kristín Margrét Halldórsdóttir S-lista

Skipulags- og umhverfisnefnd:
Varaformaður: Jón Valgeir Baldursson H-lista

Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd:
Varaformaður: Ægir Bergsson S-lista


Samþykkt
Ofangreindar tillögur um breytingar á trúnaðarstöðum samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026-2030 samþykktar með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 18:00.