Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

14. fundur 28. október 2026 kl. 16:00 - 17:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir aðalm.
  • Tómas Atli Einarsson aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson Skrifstofustjóri

1.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gögn úr drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 í málaflokkum er nefndin hefur til umfjöllunar.
Samþykkt
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi gögn að drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn.

2.Færsla og viðhald löndunarkrana á Siglufirði

Málsnúmer 2610068Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá FMS þar sem þess er óskað að nefndin taki til umfjöllunar staðsetningu, fjölda og ástand krana á hafnarsvæðinu á Siglufirði. Í úttekt á löndunarkrönum á Siglufirði eru tveir löndunarkranar dæmdir óviðgerðarhæfir vegna mikils kostnaðar og því aðeins einn löndunarkrani í góðu standi. Óskað er eftir því í erindinu að nýr krani verði staðsettur á suðurkanti Hafnarbryggju.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Nefndin telur brýnt að bregðast við og mælist til þess að í fjárfestingaáætlun fyrir árið 2027 sé gert ráð fyrir kaupum á löndunarkrana á hafnarsvæðinu á Siglufirði og í framhaldinu endurnýjun á þeim krönum sem þarfnast endurnýjunar. Mikilvægt er að fá tilboð í löndunarkrana sem fyrst og taka svo umræðu um umfang fjárfestingar og nákvæma staðsetningu löndunarkrana í samráði við hagsmunaaðila.

3.Erindi vegna bátalyftu 2026

Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá JE Vélaverkstæði þar sem óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar og afstöðu til hugmyndar fyrirtækisins um uppbyggingu aðstöðu til upptöku og þjónustu stærri báta við Siglufjarðarhöfn en fyrirtækið hefur hug á að fjárfesta í bátalyftu sem myndi þýða að við höfnina yrði að koma upp sér útbúinni aðstöðu til upptöku og sjósetningar báta.
Vísað til umsagnar
Guðrún Sif Guðbrandsdóttir vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Nefndin fagnar þeim hugmyndum sem lagðar eru fram af JE Vélaverkstæði og óskar eftir kostnaðarmati frá skipulags- og framkvæmdasviði á nauðsynlegum framkvæmdum áður en lengra er haldið. Óskað er eftir að kostnaðarmat verði lagt fram fyrir næsta fund nefndarinnar.

4.Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits NV 2026

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlitið sendi út tilkynningu í síðustu viku um mengun í vatnsveitu Fjallabyggðar á Siglufirði og benti á að sýni sem tekin voru í Skálarhlíð og Leikskálum hafi verið mengað. Í framhaldinu var íbúum bent á að sjóða neysluvatn. Vegna þessa var óskað eftir endurtekinni sýnatöku sem framkvæmd var 22.október og þá voru sýni tekin á fleiri stöðum. Staðfest var frá prófunarstofunni Sýni ehf að engin mengun var í sýnum frá vatnstanki eða í dreifikerfi vatns, ekki í Skálarhlíð eða á Leikskálum og var því gefin út önnur tilkynning um að vatnið væri ómengað og neysluhæft.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin samþykkir að óska eftir stuttri samantekt frá skipulags- og framkvæmdasviði á málavöxtum fyrir næsta fund.

5.Hafnaraðstaða og þjónusta við höfnina í Ólafsfirði

Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer

Formaður greindi frá hugmyndum varðandi færslu á flotbryggju í Ólafsfirði sem fela í sér að flotbryggja sem nú er næst ósnum verði færð þar sem sú flotbryggja var er fjarlægð var s.l. sumar og á bryggjuna verði settir viðlegufingur fyrir smábáta.
Vísað til umsagnar
Nefndin samþykkir að óska eftir kostnaðarmati á færslu flotbryggjunnar í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir en samhliða því verði jafnframt tekin upp umræða um endurskoðun stefnumótunar Fjallabyggðarhafna 2022-2030 með framtíðarskipulag og nýtingu Ólafsfjarðarhafnar í huga.

Jafnframt er samþykkt að óska eftir því að gerð verði úttekt á ástandi vestasta hluta Norðurgarðs.

6.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Landaður afli í september var 1.668 tonn, en var í september í fyrra 1.512 tonn, semsagt aukning á milli ára og nær öllum afla landað á Siglufirði.
Heildarafli á árinu 2026 frá áramótum er þá 9.251 tonn á móti 10.162 tonnum árið 2025 á fyrstu 9 mánuðum ársins. Upplýsingar um landaðan afla báta og skipa má sjá á vef Fiskistofu.

Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:15.