Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

166. fundur 27. október 2026 kl. 16:15 - 18:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson aðalm.
  • Kristín Margrét Halldórsdóttir aðalm.
  • Jón K Ólafsson aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdótti sviðsstjóri
Á fundinn mættu: Guðrún Unnsteinsdóttir, skólastjóri grunnskólans, Guðný Huld Árnadóttir, deildarstjóri leikskólans og Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður íþróttahússins, sem sat fundinn í fjarfundi.

Jón K. Ólafsson sat ekki undir liðum 1 og 2 á fundinum.

Formaður lagði til, að beiðni skólastjóra grunnskólans, að á dagskrá væri tekin ósk um breytingu á skóladagatali mál nr. 2603029, 5 mál á dagskrá.

1.Starfsreglur vegna sérkennslu og stuðnings í leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2610047Vakta málsnúmer

Fyrir liggja uppfærðar starfsreglur vegna sérkennslu og stuðnings í leikskóla Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Starfsreglur vegna sérkennslu og stuðnings í leikskóla Fjallabyggðar hafa verið uppfærðar. Nefndarmenn þakka fyrir vinnuna og telja mikilvægt að unnið sé eftir skýrum og markvissum verklagsreglum.

2.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Gjaldskrá leikskólans 2027
Samþykkt
Nefndarmenn leggja til að gjaldskráin verði hækkuð um 2,5% í ljósi aðstæðna í samfélaginu en samhliða vinnu við nýja fræðslustefnu á komandi ári verði horft til þess að leita fjölbreyttari leiða til að koma til móts við fjölskyldufólk í Fjallabyggð.

3.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun tekin fyrir.
Samþykkt
Nefndarmenn samþykkja fyrir sitt leyti fjárhagsáætlunina og þriggja ára áætlun en óska eftir við sviðsstjóra að fá skýra greinargerð með málaflokkunum um helstu útgjaldaliði.

4.Starfsáætlun leikskólans

Málsnúmer 2610066Vakta málsnúmer

Starfsáætlun leikskóla Fjallabyggðar starfsárið 2026-2027 liggur fyrir.
Lagt fram til kynningar
Starfsáætlun leikskólans fyrir starfsárið 2026-2027 lögð fram til kynningar. Nefndin þakkar skólastjóra fyrir framlagða áætlun.

5.Skóladagatal Grunnskóla og leikskóla Fjallabyggðar 2026-2027

Málsnúmer 2603029Vakta málsnúmer

Breyting á skóladagatali Grunnskóla Fjallabyggðar.
Samþykkt
Skólastjóri grunnskólans óskaði eftir breytingu á skóladagatali 2026-2027. Óskað er eftir að fella niður skipulagsdag 4. janúar 2027 og færa til skipulagsdaga að vori þannig að skólaslit getið orðið föstudaginn 4. júní sem er sjómannadagshelgi.

Fundi slitið - kl. 18:45.