Bæjarráð Fjallabyggðar

937. fundur 20. október 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgja drög að fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir kynningu á drögum fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlun. Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 22. október n.k. Lögð er áhersla á að drögin fari til umfjöllunar hjá forstöðumönnum stofnanna og viðkomandi nefnda.

2.Styrkumsóknir 2027 - Aðrir styrkir eða framlög

Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á umsóknum um styrki og framlög frá Fjallabyggð fyrir árið 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og frekari yfirferðar stjórnsýslu.

3.Styrkumsóknir 2027 - Rekstrarstyrkir til safna og setra.

Málsnúmer 2608073Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á umsóknum um rekstrarstyrki til safna og setra fyrir árið 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og frekari yfirferðar stjórnsýslu.

4.Styrkumsóknir 2027 - Hátíðarhöld og stærri viðburðir í Fjallabyggð

Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á umsóknum um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða í Fjallabyggð fyrir árið 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og frekari yfirferðar stjórnsýslu.

5.Styrkumsóknir 2027 - Menningarmál

Málsnúmer 2608071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á umsóknum um styrki og framlög til menningarmála fyrir árið 2027 í Fjallabyggð.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og frekari yfirferðar stjórnsýslu.

6.Endurbætur á sundlaug Siglufjarðar

Málsnúmer 2502037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá sviðsstjóra og verkefnastjóra skipulags - og framkvæmdasviðs vegna framkvæmda við endurbætur á lagnarými og kjallararými sundhallar Siglufjarðar. Kostnaður vegna framkvæmda er nokkuð yfir áætlun en skv. minnisblaði skýrist sá kostnaður helst af tveimur umfangsmiklum verkþáttum. Annars vegar kom í ljós þegar gröftur hófst meðfram norðurhlið hússins að vatnsmagn var verulegt og var þá ákveðið að leggja dren meðfram norðurhlið og norðvesturhorni hússins. Líta má á þennan hluta sem fyrsta áfanga sem miðar að því að verja bygginguna gegn raka - og vatnsskemmdum.
Hins vegar þurfti svo að bregðast við nokkrum leka úr sundlaugarkerinu, áhorfendapalli og við gólfniðurföll í kringum laugina og þurfti að bregðast við þeim ófyrirséðu aðstæðum með nokkuð umfangsmiklum lagfæringum.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar tæknideild fyrir framlagt minnisblað. Aukakostnaður við verkið fellur undir heildarframkvæmda- og fjárfestingakostnað ársins.

7.Skíðasvæðið 2026 2027 - umsóknir um störf

Málsnúmer 2609082Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir sem bárust í störf sem auglýst voru á skíðasvæðinu í Skarðsdal fyrir rekstur á svæðinu í vetur, en auglýst var eftir umsóknum í starf umsjónarmanns svæðisins, í starf almenns starfsmanns og starf tveggja starfsmanna til vinnu á snjótroðurum og undirbúningi svæðis.

Ein umsókn barst í starf umsjónarmanns svæðisins, þrjár umsóknir bárust í starf almenns starfsmanns og þrjár umsóknir bárust í starf á snjótroðurum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Styrkumsókn fyrir árið 2027 - Stígamót

Málsnúmer 2610022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur árlegt erindi frá Stígamótum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi og samstarfi um reksturinn fyrir árið 2027.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi styrkbeiðni frá Stígamótum að fjárhæð kr. 200.000-

9.Skipan í fjölmenningarráð SSNE

Málsnúmer 2610025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir tilnefningu Fjallabyggðar í fjölmenningarráð SSNE.
Samþykkt
Bæjarráð tilnefnir sviðsstjóra Velferðarsviðs í fjölmenningarráð SSNE

10.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis þar sem sent er til umsagnar:
156.mál, Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun. Frestur til að senda inn umsókn er til og með 22.október n.k.
59. mál, Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Frestur til að senda inn umsókn er til og með 27. október n.k
88. mál, Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27.október n.k
202. mál, Loftslagslög. Frestur er til og með 29. október n.k
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að fylgja því eftir að það fari út umsagnir frá Fjallabyggð eða SSNE þar sem þörf þykir.

Fundi slitið - kl. 10:45.