Velferðarnefnd Fjallabyggðar

13. fundur 12. nóvember 2026 kl. 16:15 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalm.
  • Sæunn Gísladóttir formaður
  • Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir aðalm.
  • Guðlaugur Magnús Ingason aðalm.
  • Björk Óladóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2027
Samþykkt
Nefndin samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2027 af sinni hálfu.

2.Heilbrigðisþing 2026

Málsnúmer 2611030Vakta málsnúmer

Framundan er heilbrigðisþing 2026
Lagt fram til kynningar
Að þessu sinni er dagskrá heilbrigðisþings helguð geðheilbrigðismálum barna og snemmtækri íhlutun.
Fyrsti hluti þingsins ber yfirskriftina „Það þarf þorp?“. Þar verður fjallað um geðheilsu barna og helstu þætti sem hafa áhrif á hana. Áhersla verður lögð á samstarf ráðuneyta, sveitarfélaga, skóla og heilbrigðisþjónustu, sem og samstarf við foreldra og forráðamenn og samskipti við börnin sjálf.

Í öðrum hluta þingsins verður fjallað um nýsköpun í geðheilbrigðisþjónustu við börn, meðal annars lágþröskuldaþjónustu og nýtingu fjarheilbrigðislausna. Einnig verður fjallað um heildstæða nálgun í ofbeldismálum, svo sem skimun í skólum og þverfaglega móttöku og meðferð vegna ofbeldis.

Sviðsstjóri velferðarsviðs mun sækja þingið.

3.Ný aðgerðaáætlun Gott að eldast fyrir 2028-2032

Málsnúmer 2611019Vakta málsnúmer

Í frétt Stjórnarráðs Íslands frá 5. nóvember 2026 kemur fram að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið stefni að nýrri fimm ára aðgerðaáætlun "Gott að eldast" fyrir 2028-2032. Markmiðið er að byggja áfram á núverandi aðgerðaáætlun og þeirri reynslu sem fengist hefur af þróunarverkefnum síðustu ára.



Lagt fram til kynningar
Fjallabyggð sótti um aðild að verkefninu á sínum tíma en þáverandi verkefnisstjórn hafnaði umsókn Fjallabyggðar sem þá hafði lagt af stað með verkefnið Hátindur 60 .

Verkefnisstjórn boðar nú aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga og fjölgun sveitarfélaga sem gera samninga um samþættan rekstur þjónustunnar.

4.Innra eftirlit velferðarþjónustu

Málsnúmer 2611016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur reglugerð um almenna tilhögun innra eftirlits þeirra þjónustuveitenda sem lúta eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Lagt fram til kynningar
Haldinn var fundur af hálfu Gæða- og eftirlitsstofnun þar sem farið var yfir reglugerðina. Á fundinum kom fram ákall til GEV um að gefa út leiðbeinandi efni og sniðmát fyrir velferðarþjónustu sveitarfélaga til að styðjast við.
Einnig komu fram athugasemdir við skamman tíma til að ljúka verkefninu þar sem áskilið er að verkefninu verði lokið fyrir 1. janúar 2027.

Fundi slitið - kl. 18:00.