Bæjarráð Fjallabyggðar

927. fundur 30. júlí 2026 kl. 09:30 - 10:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá vinnu við fjárhagsáætlun og kynnti frumdrög að rammaáætlun fyrir árið 2027 að gefnum fyrirliggjandi forsendum.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra kynninguna á frumdrögum fjárhagsáætlunar 2027.

2.Endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð 2026

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Finni I Sölvasyni, lóðarhafa og framkvæmdaaðila við lóðina að Suðurgötu 87, og Sigurði Hlöðverssyni, byggingarstjóra fyrirhugaðrar byggingar einbýlishúss á lóðinni. Þar sem ekki liggur fyrir staðfest endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð er óskað eftir undanþágu frá breytingum á hönnun hússins og fordæmi eru fyrir við svipaðar aðstæður og gera megi ráð fyrir því að fullnaðarvörnum vegna snjóflóða verði lokið innan fárra ára. Í meðfylgjandi teikningum hefur byggingin verið styrkt frá upphaflegri hönnun.

Kynning á endurskoðuðu hættumati verður 26.ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir beiðni um undanþágu á hönnun hússins þar sem ekki liggur fyrir staðfest hættumat fyrir svæðið en lóð var úthlutað og byggingarleyfi var veitt miðað við gildandi hættumat. Bæjarstjóra falið að útbúa yfirlýsingu í samráði við lögfræðing bæjarins.

3.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir frá þremur áhugasömum aðilum um að taka að sér rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal en eftirtaldir aðilar sýna rekstrinum áhuga:

EB ehf - Einar Hjörleifsson, Dalvík
Fjallgarðar Íslands ehf - Pálmi Blængsson, Fjallabyggð
Hilmar Símonarson f.h. óstofnaðs félags, Fjallabyggð
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar sýndan áhuga á rekstri skíðasvæðisins í Skarðsdal. Sviðsstjóra Skipulags- og framkvæmdasviðs falið að útbúa gögn þar sem óskað verður eftir verðtilboðum og rekstrarútfærslum frá þessum aðilum.

4.Umsagnarbeiðni tímabundið áfengisleyfi - Síldarkaffi

Málsnúmer 2607019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar á umsókn Síldarminjasafnsins á tækifærisleyfi til áfengisveitinga í sölubíl á sunnanverðu Ráðhústorgi á Siglufirði á Síldarævintýrinu þann 1.ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

5.Umsagnarbeiðni um lengri opnunartíma á Síldarævintýri 2026

Málsnúmer 2607021Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar á umsókn Aðalbakarans um lengri opnunartíma vegna Síldarævintýris til kl 01:00 aðfararnótt 1.ágúst og aðfararnótt 2.ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

6.Umsókn um styrk til menningarmála

Málsnúmer 2510019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Leikfélagi Fjallabyggðar þar sem óskað er eftir styrk til uppsetningar og sýningu á barnaleikriti í haust.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og lýsir yfir ánægju með að leikfélagið ætli að setja upp barnaleikrit. Samþykkt að styrkja félagið með eftirgjöf á húsaleigu í Tjarnarborg.

7.Aðalgata 6B framkvæmdaráform

Málsnúmer 2509032Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Hilmari D Valgeirssyni þar sem lögð er fram tillaga að skilum á lóðinni að Aðalgötu 6b og uppgjöri vegna niðurrifs húsarústa sem þar voru.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við lóðarhafa um skil á lóðinni.

8.Umsókn um styrk vegna Síldarævintýris 2026

Málsnúmer 2607022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni um svokallaðan pop-up styrk til Síldarævintýris og tónleika Ástarpunga vegna fjármögnunar á búnaði fyrir hátíðina að upphæð kr. 250.000.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir erindið

9.Kynningarbréf Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 2607016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynningarbréf frá samtökum Orkusveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:30.