Bæjarráð Fjallabyggðar

932. fundur 10. september 2026 kl. 08:45 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Ræsting í skólahúsnæði Tónlistarskólans á Tröllaskaga á Siglufirði 2026

Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer

Verksamningur við Spikk & Span ehf. um ræstingu í skólahúsnæði Tónlistarskólans á Tröllaskaga á Siglufirði rennur út 14.nóvember n.k.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að gera verðkönnun innan Fjallabyggðar á þrifum skólahúsnæðis tónlistarskólans á Siglufirði.

2.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur álit lögmanns Fjallabyggðar á jafnri stöðu umsækjenda um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal.
Lagt fram til kynningar
Bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi D-lista styður áframhaldandi rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal en gerir athugasemdir við undirbúning ákvörðunar um að hafna öllum umsóknum og fela sveitarfélaginu reksturinn.

Skrifleg lögfræðiráðgjöf, sem nú er meðal fundargagna, lá fyrir við fyrri afgreiðslu málsins en hafði ekki verið afhent fulltrúa D-lista. Honum var þá aðeins gerð munnleg grein fyrir henni. Í skriflega svarinu er mælt með að vísa umleitunum eins umsækjanda frá, en ekki lagt til að öllum umsóknum verði hafnað eða að sveitarfélagið taki reksturinn yfir.

Jafnframt er gerð athugasemd við frágang síðustu fundargerðar. Vegna sérstakra aðstæðna var fallist á skil bókana eftir fund. Bókun fulltrúa D-lista var send kl. 13:32 og fjórum mínútum síðar áskildi meirihlutinn sér rétt til svars. Viðbótarbókun meirihlutans barst rétt fyrir kl. 23 sama kvöld, um níu og hálfri klukkustund síðar, og innihélt ný efnisatriði og persónulegar ávirðingar.

Beiðni fulltrúa D-lista um svigrúm til viðbragða var hafnað. Hann dró eigin viðbótarbókun síðan til baka þegar ljóst var að hún yrði ekki tekin inn, til að ljúka samskiptunum og færa umræðuna á næsta fund. Það fól ekki í sér samþykki við fyrri synjun eða mismunandi meðferð bókana.
Fulltrúi D-lista hafnar ásökunum um lýðskrum og pólitískar smákeilur. Gagnrýni hans snýr að upplýstri ákvarðanatöku og ábyrgri meðferð fjármuna. Óskað er eftir formlegri, rökstuddri afgreiðslu á fyrirliggjandi leiðréttingarkröfu og skýringu á því hvaða fyrirkomulag gilti um skil bókana og lokun fundargerðar."

Bæjarfulltrúar H og S-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarráðsfulltrúa D-listans bauðst, eftir að honum var hafnað um seinni bókun á síðasta fundi, að taka málið upp á næsta fundi bæjarráðs sem hann gerir hér og þar með hefur hann haft tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum til skila. Samkomulag var á síðast bæjarráðsfundi um að bókanir yrðu lagðar fram eftir fund og komu báðir aðilar sjónarmiðum sínum á framfæri. Þar sem öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal var hafnað, þá mun ekki reyna á hæfi aðila í þessu máli."






3.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fyrir liggur yfirlit um stöðu rekstrarreiknings í lok ágúst 2026 og gróf útkomuspá miðað við stöðu. Jafnframt liggur fyrir yfirlit um stöðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 miðað við mismunandi forsendur sem og yfirlit yfir hugsanlegar framkvæmdir og fjárfestingar sem þarf að fara í á næsta ári.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir framlögð gögn og mismunandi sviðsmyndir vegna breytinga á gjaldskrám.

4.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029

Málsnúmer 2509018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur yfirlit rekstrarreiknings 31.ágúst s.l.
Farið fyrir stöðuna og skýrð þau frávik sem eru frá fjárhagsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir yfirlit yfir stöðu rekstrarreiknings. Flestir liðir eru á áætlun en nokkrar undantekningar frá því. Ljóst er að gera þarf viðauka vegna snjómoksturs sem komin er framúr áætlun.

5.Námskeið - frístund

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Fyrir liggur svar vegna fyrirkomulags Frístundar haustið 2026 frá sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra fræðslu- og frístundanefndar.
Vísað til nefndar
Bæjarráð þakkar sviðstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra fræðslu- og frístundarmála fyrir góða yfirferð um fyrirkomulag Frístundar. Ljóst er að mikill metnaður er lagður í frístund og lengda viðveru. Starfið fer vel af stað og góð þátttaka. Erindinu vísað til umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd.

6.Umsókn um styrk - Íþróttaskóli barna

Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá KF þar sem óskað er eftir fríum afnotum af íþróttahúsinu í Ólafsfirði fyrir íþróttaskóla fyrir leikskólabörn veturinn 2026-2027.
Samþykkt
Bæjarráð fagnar erindinu frá KF og samþykkir frí afnot af íþróttahúsinu í Ólafsfirði skv. fyrirliggjandi beiðni frá félaginu. Forsvarsmenn KF setji sig í samband við forstöðumann Íþróttamiðstöðva varðandi frekari tímasetningar.

7.Fljótagöng - Undirbúningur

Málsnúmer 2609020Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samþykkt bæjarstjórnar Fjallabyggðar um að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Framkvæmdin snýr að vatnsbólinu í Hólsdal á Siglufirði og er ætlunin að tryggja vatnsgæði á framkvæmda- og rekstrartíma jarðganganna.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Erindinu vísað til bæjarstjórnar til formlegs samþykkis.

8.Umsóknir um stofnframlög ríkisins

Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá HMS um að umsóknarfrestur til stofnframlaga til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum er til 23. október n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Erindi til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Landssambandi eldri borgara til nýkjörinna sveitarstjórna vegna skipan í öldungaráð og virks samráðs við eldra fólk.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga til næstu fjögurra ára. Drögin verða lögð fram á landsþingi sambandsins 23-25 september n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.