Öldungaráð Fjallabyggðar

12. fundur 03. nóvember 2026 kl. 15:00 - 16:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Þorgeir Bjarnason Aðalmaður
  • Pálína Pálsdóttir fulltrúi eldri borgara
  • Þorbjörn Sigurðsson fulltrúi eldri borgara
  • Ólafur Baldursson fulltrúi eldri borgara
  • Elín Arnardóttir fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2605049Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun vegna öldungaráðs 2027
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn lýsa ánægju með fjárhagsáætlunina fyrir árið 2027.

2.Félagsaðstaða félagssamtaka eldri borgara

Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer

Ósk um húsnæðisaðstöðu hjá HSN fyrir félag eldri borgara á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri sagði frá því að hún hefði sent fyrirspurn til HSN um rými sem áður hýsti skrifstofu framkvæmdastjóra að beiðni félags eldri borgara á Siglufirði. Beðið er viðbragða.

3.Öldungaráð - Önnur mál 2025-2030

Málsnúmer 2502023Vakta málsnúmer

Önnur mál öldungaráðs.
Fyrirspurn frá eldri borgurum vegna snjómoksturs við hús þegar mikið snjóar og fólk kemst ekki út úr húsum sínum. Hefur sveitarfélagið einhver tök á að bregðast við eða fá einhverja til þess?

Óskað er svara við:

Hversu margir eldri borgarar í Fjallabyggð njóta afsláttar af fasteignagjöldum og hverjar eru reglurnar fyrir slíkum afslætti.

Hversu margir íbúar eru 67 ára og eldri í Fjallabyggð og hversu margir eru á aldrinum 60 ára til 66 ára.

Minnt er á beiðni frá fundi frá 8. sept. 2026 mál 2609011 en þar segir:

Ósk félags eldri borgara á Siglufirði um að könnuð verði þörf á húsnæði fyrir eldra fólk.
Vísað til bæjarráðs
Félag eldri borgara á Siglufirði lagði fram erindi varðandi húsnæðismál eldra fólks í Fjallabyggð. Í erindinu er óskað eftir því að bæjarráð láti kanna þörf og áhuga meðal íbúa 60 ára og eldri á sérstökum búsetuúrræðum fyrir aldurshópinn, hvort sem um er að ræða leigu- eða kaupleiðir.

Öldungaráð tekur undir erindið og beinir því til bæjarráðs að kannaður verði áhugi og þörf fyrir slíkt húsnæði í Fjallabyggð.

Fundi slitið - kl. 16:00.