Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 919. fundur - 20.05.2026

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til nefndar
Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi gögnum til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd og óskar eftir afstöðu nefndarinnar á þeim áherslum sem fram koma í þeim.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 334. fundur - 10.06.2026

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að afgreiðslu verði frestað til næsta fundar. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram með nefndarmönnum.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 335. fundur - 13.08.2026

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til bæjarráðs
Nefndin leggur til að hafin verði vinna við endurskipulagningu á snjómokstri með hagræðingu og nútímavæðingu í huga. Þeirri vinnu þarf að ljúka fyrir maí 2027, svo hægt sé að bjóða verkið út. Samhliða verði unnið að lausn varðandi snjómokstur veturinn 2026 - 2027.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 929. fundur - 20.08.2026

Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 20.maí s.l. var samþykkt að vísa drögum að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 til umræðu í skipulags - og umhverfisnefnd og óska jafnframt eftir afstöðu nefndarinnar til fyrirliggjandi gagna. Nefndin tók málið fyrir á fundi sínum þann 13. ágúst s.l. og bókaði eftirfarandi:
"Nefndin leggur til að hafin verði vinna við endurskipulagningu á snjómokstri með hagræðingu og nútímavæðingu í huga. Þeirri vinnu þarf að ljúka fyrir maí 2027, svo hægt sé að bjóða verkið út. Samhliða verði unnið að lausn varðandi snjómokstur veturinn 2026 - 2027."
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar þar sem beðið er frekari gagna.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Fyrir liggur uppfærð tillaga sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs á útboðsgögnum og verklýsingu vegna snjómoksturs og hálkuvarnar 2026-2029.
Vísað til nefndar
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir framlögð gögn vegna væntanlegs útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð. Málinu vísað til skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 336. fundur - 22.09.2026

Fyrir liggja útboðsgögn fyrir snjómokstur og hálkuvarnir 2026 - 2029. Bæjarráð óskar eftir umfjöllun og umsögn nefndarinnar.
Vísað til bæjarráðs
Minnihluti nefndarinnar leggur fram eftirfarandi bókun vegna málsins:

"Fulltrúi minnihlutans harmar að meirihlutinn hafi hafnað tillögu minnihlutans um að óska eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort útboðið samræmist lögum nr. 120/2016, þ. á m. innbyrðis ósamræmi milli ákvæða 0.4.6 og 1.0.4 um val og forgangsröðun verktaka. Einnig hvort að forval hafi ekki átt að eiga sér stað samkvæmt lögum.
Mikilvægt er að óska eftir slíku áliti þegar um er að ræða umfangsmikið útboð til þriggja ára, sérstaklega þegar útboðsgögn innihalda ákvæði sem virðast stangast á.
Mikilvægt er að Fjallabyggð fari ávalt eftir lögum þannig að jafnræði ríki milli aðila."


Meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarráð að farið verði í útboð á snjómokstri og hálkuvörnum sem tekur mið af fyrirliggjandi gögnum. Meirihluti nefndarinnar ítrekar við bæjarráð að tryggt sé að útboðsferlið sé unnið samkvæmt lögum og reglum sem gilda um útboð, þjónustukaup og lögum nr 120/2016 lög um opinber innkaup.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 934. fundur - 24.09.2026

Fyrir liggur umsögn skipulags -og umhverfisnefndar á gögnum vegna útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum en nefndin tók málið fyrir á fundi sínum þann 22.september.
Meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarráð að farið verði í útboð á snjómokstri og hálkuvörnum sem tekur mið af fyrirliggjandi gögnum. Meirihluti nefndarinnar ítrekar við bæjarráð að tryggt sé að útboðsferlið sé unnið samkvæmt lögum og reglum sem gilda um útboð, þjónustukaup og lögum nr 120/2016 lög um opinber innkaup.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð samþykkir að óska eftir frekari gögnum og frestar afgreiðslu málsins.