Bæjarráð Fjallabyggðar

919. fundur 20. maí 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal bæjarstjóra vegna ýmissa framkvæmda og fjárfestinga á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra samantektina og vísar til umræðu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

2.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til nefndar
Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi gögnum til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd og óskar eftir afstöðu nefndarinnar á þeim áherslum sem fram koma í þeim.

3.Framtíðaruppbygging á mótorkrossbraut í Ólafsfirði

Málsnúmer 2605033Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vélsleðafélagi Ólafsfjarðar þar sem kynntar eru metnaðarfullar hugmyndir um heildaruppbyggingu mótorkrosssvæðis félagsins við Ósinn í Ólafsfirði. Forsendur frekari uppbyggingar felast í fjárhagslegum stuðningi sveitarfélagsins eins og fram kemur í erindinu.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar Vélsleðafélaginu erindið og vísar því til umræðu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

4.Skíðasvæði - úttekt vinnueftirlits 2026

Málsnúmer 2603030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur úttekt vinnueftirlitsins á skíðalyftu á skíðasvæðinu í Ólafsfirði. Krafist er útbóta á nokkrum atriðum er varða öryggisbúnað og hjól á möstrum.
Samþykkt
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að sjá til þess að viðeigandi úrbætur verði gerðar á skíðalyftunni í Ólafsfirði í samræmi við úttekt vinnueftirlits og að undangengnu kostnaðarmati.

5.Fundargerð almannavarnanefndar 2026.

Málsnúmer 2605019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð vorfundar almannavarnanefndar í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá 5.maí s.l.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála

Málsnúmer 2605029Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt HMS á áætlaðri íbúaþörf í Fjallabyggð.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Gjaldskrármál og samstarf við Dalvík

Málsnúmer 2509038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Dalvíkurbyggð þar sem samningi um samstarf sundlauga Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar er rift þar sem mikill mismunur er á gjaldskrá á milli sveitarfélaganna. Jafnframt kemur fram að vilji er til að endurskoða ákvörðun ef forsendur breytast.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Ársfundur Brákar íbúðafélags 2026

Málsnúmer 2604057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:00.