Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

334. fundur 10. júní 2026 kl. 16:00 - 18:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Pálmi Blængsson formaður
  • Jón Valgeir Baldursson aðalm.
  • Aðalbjörg Snorradóttir aðalm.
  • Stefán Júlíusson aðalm.
  • Tómas Atli Einarsson varam.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs
Formaður hefur fund á að biðja um að tveim málum sé bætt við dagskrá fundarins. málsnr 2606024 og 2111051 og eru það nr 2. og 6 á dagskrá fundarins.

Samþykkt af öllum nefndarmönnum.

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurgata 43 - Flokkur 2

Málsnúmer 2603038Vakta málsnúmer

Umsókn um leyfi fyrir svölum á efri hæð á Suðurgötu 43 Siglufirði. Breytingar hafa verið gerðar á uppdráttum og jákvæð umsögn Minjastofnunar borist.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaða framkvæmd til aðliggjandi lóðarhafa.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vetrarbraut 8-10 8R - Flokkur 2

Málsnúmer 2606024Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Vetrarbraut 8-10 Siglufirði ásamt fylgigögnum.
Samþykkt
Nefndin samþykkir byggingaráformin og mun byggingarfulltrúi gefa út byggingarleyfi þegar skilyrði 2.4.4.gr. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.

3.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2605061Vakta málsnúmer

Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamning
Samþykkt
Samþykkt.

4.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að afgreiðslu verði frestað til næsta fundar. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram með nefndarmönnum.

5.Athugasemdir vegna fyrirhugaðrar flotgufu á Ólafsfjarðarvatni

Málsnúmer 2606014Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn Elísar Hólm, dagsett 11.05.2026, vegna fyrirhugaðrar flotgufu á Ólafsfjarðarvatni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

Nefndin felur sviðsstjóra að svara erindinu miðað við umræður á fundinum.

6.Losunarstaðir fyrir óvirkan úrgang í Fjallabyggð

Málsnúmer 2111051Vakta málsnúmer

Umræða tekin um losunarstaði í sveitarfélaginu fyrir óvirkan úrgang og framtíðaráform í þeim málum.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin felur formanni ásamt sviðsstjóra að gera samantekt á kostnaði við óvirkan úrgang og möguleika á framtíðar svæði í Fjallabyggð og leggja fyrir á næsta fundi.

7.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2026 - 2030

Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer

Eyðublað vegna undirritunar drengskaparheits um þagnarskyldu lagt fram til undirritunar.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

8.Erindisbréf nefnda 2026-2030

Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer

Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar 2026-20230 lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

9.Sveitarfélagaskólinn

Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar Sveitafélagaskólann.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:00.