Bæjarráð Fjallabyggðar

929. fundur 20. ágúst 2026 kl. 08:15 - 10:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Vatnsleki í Héðinsfjarðargöngum

Málsnúmer 2105079Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mættu fulltrúar Vegagerðarinnar, Stefán Þór Pétursson deildarstjóri umsjónardeildar Norðursvæðis, Steinþór Björnsson deildarstjóri þjónustudeildar og Margrét Silja Þorkelsdóttir svæðisstjóri.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fulltrúar Vegagerðar upplýstu að fyrirhugað er að fara í umtalsverðar aðgerðir og rannsóknir nú á haustdögum til þess að reyna að koma í veg fyrir vatnsleka í göngunum auk þess sem farið verður í viðgerð á veginum á þeim kafla sem verst er farinn. Vanalega er ekki farið í slíkar framkvæmdir yfir sumartímann vegna mikillar umferðar og þ.a.l. öryggis og því eru framkvæmdir áætlaðar í haust.

Bæjarráð þakkar fulltrúum Vegagerðar fyrir gott samtal og skýringar og leggur áherslu á að skipulags- og framkvæmdasvið fylgi málinu eftir og upplýsi um framgang.

2.Framkvæmdir og viðhald 2026

Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds á árinu 2026.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Sviðsstjóri Skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds í sveitarfélaginu. Flest verk eru á tímaáætlun.

3.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs þann 30.júlí s.l. var sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs falið að útbúa gögn þar sem óskað yrði eftir verðtilboðum og rekstrarútfærslum frá þeim þremur aðilum sem sýnt hafa rekstri skíðasvæðisins í Skarðsdal áhuga. Fyrir liggja gögn frá sviðsstjóra og bæjarstjóra sem lagt er til að send verði þessum aðilum til frekari upplýsingaöflunar.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins og óska eftir áliti lögmanns á jafnri stöðu umsækjenda.
Bæjarráð óskar jafnframt eftir stöðu viðhalds á tækjabúnaði og framkvæmda því tengdu sem tilheyra svæðinu fyrir næsta bæjarráðsfund. Þá óskar bæjarráð eftir lista yfir lausfé sem tilheyrir svæðinu.

4.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 20.maí s.l. var samþykkt að vísa drögum að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 til umræðu í skipulags - og umhverfisnefnd og óska jafnframt eftir afstöðu nefndarinnar til fyrirliggjandi gagna. Nefndin tók málið fyrir á fundi sínum þann 13. ágúst s.l. og bókaði eftirfarandi:
"Nefndin leggur til að hafin verði vinna við endurskipulagningu á snjómokstri með hagræðingu og nútímavæðingu í huga. Þeirri vinnu þarf að ljúka fyrir maí 2027, svo hægt sé að bjóða verkið út. Samhliða verði unnið að lausn varðandi snjómokstur veturinn 2026 - 2027."
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar þar sem beðið er frekari gagna.

5.Losun úr fráveitu Fjallabyggðar 2026

Málsnúmer 2608042Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar, vegna kvartana frá íbúum, um losun úr dælubílum Verkvals eftir hreinsun á fráveitulögnum í Ólafsfirði.
Samþykkt
Fyrir liggur lausn um breytt verklag hvernig förgun á efni úr dælubílum Verkvals verði háttað í framtíðinni í samræmi við kröfur. Hætt verður að nýta holur til losunar í Kleifarhorni og á Siglufirði einnig.

6.Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga.

Málsnúmer 2608034Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá innviðaráðuneyti þar sem fram kemur að ráðuneytið bjóði kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufunda um hinsegin málefni. Boðið er upp á tvær tímasetningar, 9.og 10.september n.k. og sjá Samtökin 78 um fræðsluna.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð hvetur kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélagins að skoða þátttöku í fræðslufundinum, sem er í fjarfundi og tekur 1,5 klst.

7.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 85.fundar SSNE.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:00.