Bæjarráð Fjallabyggðar

934. fundur 24. september 2026 kl. 08:00 - 08:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson staðgengill bæjarstjóra

1.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsögn skipulags -og umhverfisnefndar á gögnum vegna útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum en nefndin tók málið fyrir á fundi sínum þann 22.september.
Meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarráð að farið verði í útboð á snjómokstri og hálkuvörnum sem tekur mið af fyrirliggjandi gögnum. Meirihluti nefndarinnar ítrekar við bæjarráð að tryggt sé að útboðsferlið sé unnið samkvæmt lögum og reglum sem gilda um útboð, þjónustukaup og lögum nr 120/2016 lög um opinber innkaup.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð samþykkir að óska eftir frekari gögnum og frestar afgreiðslu málsins.

2.Ályktun um atvinnumál 2026

Málsnúmer 2609075Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um uppsögn sextán starfsmanna í rækjuvinnslu Ísfélagsins á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð Fjallabyggðar harmar að til uppsagna sextán starfsmanna hjá Ísfélaginu í rækjuvinnslu hafi komið vegna hráefnisskorts og tekur undir þær vonir fyrirtækisins að hægt verði að hefja rækjuvinnslu á Siglufirði að nýju fljótlega á næsta ári.

3.Erindi frá launþegasamtökum

Málsnúmer 2609036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá formanni Starfsgreinasambands Íslands þar sem óskað er upplýsinga um hvað sveitarfélagið Fjallabyggð er tilbúið að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður og hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðuleika þannig að gjaldskrár hækki en ekki sem nemur 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Sveitarfélagið Fjallabyggð tekur áskorun Starfsgreinasambandssins um þjóðarsátt um verðstöðuleika. Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur þegar samþykkt að gjaldskrá fyrir árið 2027 hækki um 2,5% sem er sama og farið er fram á í áskorun SGS.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu til framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands.

4.Endurhæfum Reykjalund; Ákall um stuðning

Málsnúmer 2609051Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Hollvinasamtökum Reykjalundar þar sem leitað er til sveitarfélaga í landinu um að taka virkan þátt í uppbyggingu Reykjalunds með fjárframlagi.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Hollvinasamtökum Reykjalundar fyrir erindið. Föstudaginn 2. október 2026 standa samtökin ásamt RÚV fyrir landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar.
Bæjarráð samþykkir að styrkja söfnunina um kr. 100.000, því við teljum að Reykjalundur sé mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins. Bæjarráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga til að taka þátt í átakinu.

5.Grænbók - stefnumótandi áætlanir í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 2607011Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Innviðaráðuneyti þar sem óskað er eftir upplýsingum um stefnumótun sveitarfélaga.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að stýra vinnu við að svara erindinu.

6.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja erindi frá Nefndasviði Alþingis þar sem eru til umsagnar tvö frumvörp til laga.
Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og hins vegar sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsagnir er til 1.október n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Haustþing SSNE 2026

Málsnúmer 2607006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur þinggerð frá haustþingi SSNE sem fram fór í Dalvíkurbyggð 4.september s.l.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð SSNE frá 86.fundi stjórnar samtakanna.
Samþykkt
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 08:45.