Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

336. fundur 22. september 2026 kl. 12:00 - 13:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Pálmi Blængsson aðalm.
  • Jón Valgeir Baldursson aðalm.
  • Aðalbjörg Snorradóttir aðalm.
  • Stefán Júlíusson aðalm.
  • Viktor Freyr Elísson aðalm.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Tekið til umfjöllunar tillögur að breytingum á Gjaldskrám Fjallabyggðar fyrir árið 2027
Samþykkt
Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti tillögur um 2,5% hækkun á gjaldskrám fyrir árið 2027.

2.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja útboðsgögn fyrir snjómokstur og hálkuvarnir 2026 - 2029. Bæjarráð óskar eftir umfjöllun og umsögn nefndarinnar.
Vísað til bæjarráðs
Minnihluti nefndarinnar leggur fram eftirfarandi bókun vegna málsins:

"Fulltrúi minnihlutans harmar að meirihlutinn hafi hafnað tillögu minnihlutans um að óska eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort útboðið samræmist lögum nr. 120/2016, þ. á m. innbyrðis ósamræmi milli ákvæða 0.4.6 og 1.0.4 um val og forgangsröðun verktaka. Einnig hvort að forval hafi ekki átt að eiga sér stað samkvæmt lögum.
Mikilvægt er að óska eftir slíku áliti þegar um er að ræða umfangsmikið útboð til þriggja ára, sérstaklega þegar útboðsgögn innihalda ákvæði sem virðast stangast á.
Mikilvægt er að Fjallabyggð fari ávalt eftir lögum þannig að jafnræði ríki milli aðila."


Meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarráð að farið verði í útboð á snjómokstri og hálkuvörnum sem tekur mið af fyrirliggjandi gögnum. Meirihluti nefndarinnar ítrekar við bæjarráð að tryggt sé að útboðsferlið sé unnið samkvæmt lögum og reglum sem gilda um útboð, þjónustukaup og lögum nr 120/2016 lög um opinber innkaup.

Fundi slitið - kl. 13:00.