Bæjarráð Fjallabyggðar

939. fundur 06. nóvember 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Skíðasvæðið 2026 2027 - umsóknir um störf

Málsnúmer 2609082Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal sviðsstjóra vegna umsókna um störf á skíðasvæðinu í Skarðsdal.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar umsækjendum sýndan áhuga á að starfa við skíðasvæðið í Skarðsdal og heimilar sviðsstjórum að ganga til samninga við þrjá aðila.

2.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar úr útboði á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029 og samantekt sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs á stigagjöf bjóðenda í verkefnin í samræmi við útboðsgögn. Sviðsstjóri óskar eftir heimild til að semja við aðila á grundvelli útboðs.

Eftirtaldir verktakar buðu í verkið:
Árni Helgason ehf
Bás ehf
LFS ehf
Smárinn, vélaverktaki ehf
Sölvi Sölvason
Samþykkt
Bæjarráð fagnar því hve margir verktakar sýndu áhuga á útboðinu og heimilar sviðsstjóra Skipulags- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga á grundvelli útboðs.

3.Landsig - Hverfisgata 19

Málsnúmer 2504027Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Einari Karlssyni, íbúa við Hverfisgötu 19, þar sem óskað er eftir því annars vegar að Fjallabyggð endurskoði afstöðu sína vegna kostnaðarþátttöku við endurnýjun á fráveitulögn innan lóðar við húseignina og hins vegar að Fjallabyggð standi straum af kostnaði við nýjan stoðvegg við lóðarmörkin.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar eigendum Hverfisgötu 19 fyrir innsent erindi. Samþykkt að óska eftir því við sviðsstjóra Skipulags- og framkvæmdasvið að svara erindinu formlega út frá þeim reglum og viðmiðum sem gilda hjá sveitarfélaginu.

4.Erindi vegna bátalyftu 2026

Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá JE Vélaverkstæði þar sem óskað er eftir afstöðu til hugmyndar fyrirtækisins um uppbyggingu aðstöðu til upptöku og þjónustu stærri báta við Siglufjarðarhöfn en fyrirtækið hefur hug á að fjárfesta í bátalyftu sem myndi þýða að við höfnina yrði að koma upp sér útbúinni aðstöðu til upptöku og sjósetningar báta. Erindið var tekið fyrir í í framkvæmda, - hafna - og veitunefnd þann 28.október s.l. og óskaði nefndin eftir kostnaðarmati á nauðsynlegum framkvæmdum áður en lengra yrði haldið.
Vísað til umsagnar
Bæjarráð fagnar hugmyndum JE Vélaverkstæðis um uppbyggingu á svæðinu og tekur undir bókun Framkvæmda- hafna- og veitunefndar. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að kjörnir fulltrúar heimsæki fyrirtækið og kynni sér starfsemi þess og fyrirhugaðar framkvæmdir. Bæjarstjóra falið að skipuleggja heimsókn til fyrirtækisins.

5.Kvennaathvarf - Umsókn um rekstrarstyrk 2027

Málsnúmer 2610102Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Kvennaathvarfinu á Norðurlandi þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk til að standa undir kostnaði vegna húsnæðis fyrir árið 2027 en óskað er eftir styrk frá sveitarfélögunum á Norðurlandi eystra samtals að upphæð 4,3 milljónir króna þar sem hlutur Fjallabyggðar væri kr. 262.159.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir beiðni Kvennaathvarfsins á Norðurlandi.

6.Undirbúningur mála og gæði fundargagna - framkvæmd 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar

Málsnúmer 2611004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá bæjarráðsfulltrúa Tómasi Atla Einarssyni f.h. kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokks þar sem óskað er eftir að málefnið verði tekið á dagskrá bæjarráðsfundar til umfjöllunar.

Lagt fram til kynningar
Tómas Atli, bæjarráðsfulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun ásamt meðfylgjandi greinargerð:

"Bæjarráð áréttar að bæjarstjóra beri að tryggja vandaðan undirbúning mála sem lögð eru fyrir bæjarstjórn, bæjarráð og nefndir, í samræmi við 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar nr. 490/2025.

Bæjarstjóri skal halda utan um gagnaöflun, yfirfara hvort gögn séu fullnægjandi og kalla eftir þeim upplýsingum, umsögnum, kostnaðarmati og faglegu mati á valkostum sem þörf er á frá ábyrgum sviðsstjórum eða öðrum hlutaðeigandi aðilum.

Bæjarstjóri skal tryggja að nauðsynleg gögn fylgi fundarboði og að skýrt komi fram hvaða ákvörðunar er óskað og á hvaða forsendum hún byggist. Vanti mikilvægar upplýsingar skal gera grein fyrir því og leggja til frestun ákvörðunar þar til úr hefur verið bætt."

Bæjarstjóri leggur fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarstjóri áréttar að stjórnsýsla Fjallabyggðar leggur mikinn metnað í að undirbúa öll mál af fagmennsku, hlutlægni og í samræmi við 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar og stjórnsýslulög nr. 37/1993. Gagnaöflun og mat á valkostum tekur eðlilega mið af umfangi hvers máls svo tryggja megi skilvirka stjórnsýslu og órofna þjónustu við íbúa. Ávallt er tekið fagnandi við efnislegum ábendingum og fyrirspurnum kjörinna fulltrúa á fundum um einstök mál ef frekari skýringa er þörf."

Fulltrúar H-lista og S-lista taka undir bókun bæjarstjóra.

7.Húsnæðismál félags eldri borgara Siglufjarðar

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Félagi eldri borgara á Siglufirði um að könnuð verði þörf á húsnæði fyrir eldra fólk.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar félagi eldri borgara á Siglufirði fyrir erindið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa það að fara í umrædda könnun um húsnæðismál 60 ára og eldri í Fjallabyggð.

8.Virðismat KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2610100Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um stöðu á Virðismatsvegferð KÍ og opinberra vinnuveitenda en áætluð endurskoðun þann 1.október 2026 náðist ekki.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Mannamót 2027

Málsnúmer 2610093Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá Markaðsstofu Norðurlands um Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem haldin verður fimmtudaginn 28.janúar 2027. Mannamót eru tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni til að kynna starfsemi sína, hitta fagaðila í greininni og efla tengsl við núverandi og nýja samstarfsaðila.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð leggur til að Fjallabyggð í samstarfi við Ferðaklasa Fjallabyggðar taki virkan þátt í Mannamótum í janúar og felur bæjarstjóra að setja sig í samband við Ferðaklasa Fjallabyggðar og undirbúa þátttöku.

10.Erindi til innviðaráðherra vegna Loftbrúar

Málsnúmer 2611001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE til innviðaráðherra þar sem stjórn SSNE leggur áherslu á mikilvægi Loftbrúar sem byggðatækis til að draga úr búsetutengdum aðstöðumun og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri
þjónustu. Bent er á að við endurskoðun úrræðisins þarf að hafa að leiðarljósi að ferðakostnaður sé viðráðanlegur og fyrirsjáanlegur, einnig þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara. Með erindinu vill stjórnin koma á framfæri sjónarmiðum sínum um boðaðar breytingar á Loftbrú og kalla eftir samtali um framtíðarútfærslu hennar.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð tekur undir erindi SSNE til innviðaráðherra og lýsir yfir vonbrigðum með samráðsleysi við landsbyggðirnar.

11.Vindmælir í byggð - Siglufjörður

Málsnúmer 2611005Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt frá Veðurstofu Íslands þar sem gerð er grein fyrir spágildi veðurspár í óveðri sem gekk yfir þann 14.október s.l. og hugsanlegar leiðir til þess að bæta veðurspár og veðurmælingar.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Veðurstofu Íslands fyrir samteknar upplýsingar og ítrekar mikilvægi þess að bæta staðbundnar veðurspár, veðurmælingar og fyrirsjáanleika á Siglufirði í ljósi atburða 14. október s.l.

12.Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031

Málsnúmer 2606028Vakta málsnúmer

Fyrir liggja uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027 - 2031.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

13.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl bæjarstjóra frá fundum 73-77 með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra fyrir framlögð gögn

14.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir Framkvæmda-, hafna - og veitunefndar Fjallabyggðar, Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar, stýrihóps heilsueflandi samfélags og öldungaráðs.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:45.