Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

335. fundur 13. ágúst 2026 kl. 16:00 - 18:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Pálmi Blængsson aðalm.
  • Jón Valgeir Baldursson aðalm.
  • Aðalbjörg Snorradóttir aðalm.
  • Stefán Júlíusson aðalm.
  • Viktor Freyr Elísson aðalm.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vermundarstaðir land 190154 - Flokkur 1

Málsnúmer 2606026Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu í landi Vermundarstaða L190154
Samþykkt
Nefndin samþykkir byggingaráformin og mun byggingarfulltrúi gefa út byggingarleyfi þegar skilyrði 2.4.4.gr. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.

2.Hlíðarvegur 23A - umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2604032Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Hlíðarvegi 23a 625 Ólafsfirði. Málið hefur verið grenndarkynnt og ein athugasemd borist.
Samþykkt
Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara innsendri athugasemd. Nefndin samþykkir byggingaráformin, með fyrirvara um að teikning verði uppfærð í geymslu, og mun byggingarfulltrúi gefa út byggingarleyfi þegar skilyrði 2.4.4.gr. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.

3.Aðalgata 15, umsókn um breytingu aðalskipulags.

Málsnúmer 2606069Vakta málsnúmer

Óskað er eftir minniháttar breytingu á aðalskipulagi, þar sem lóðinni við Aðalgötu 15 er breytt úr íbúðarhúsalóð yfir í verslunar- og þjónustulóð.
Samþykkt
Nefndin samþykkir að hafin verði vinna við minniháttar breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarhúsalóð við Aðalgötu 15 er breytt úr íbúðarhúsalóð yfir í verslunar- og þjónustulóð.

4.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2608003Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Aðalgötu 2, 580 Siglufirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Samþykkt

5.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2608004Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Lindargötu 20, 580 Siglufirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Samþykkt

6.Suðurgata 83 - Úthlutun lóðar felld úr gildi

Málsnúmer 2408008Vakta málsnúmer

Samkvæmt reglum um úthlutun lóða í Fjallabyggð skal skilað inn teikningum innan 6 mánaða frá úthlutun lóða. Þar sem engin gögn hafa borist frá lóðarhafa er úthlutun lóðarinnar við Suðurgötu 83, 580 Siglufirði felld úr gildi.
Samþykkt
Samþykkt.

7.Fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni 2026

Málsnúmer 2603001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Fjallgörðum Íslands þar sem kynnt er hugmynd að fljótandi gufubaði á Ólafsfjarðarvatni í landi Brekkulands. Málið var tekið fyrir í bæjarráði og óskað umsagna Veiðifélags og Umhverfisstofnunar. Jákvæðar umsagnir hafa borist frá báðum aðilum, auk umsagnar fiskifræðings og framkvæmdarleyfi frá Fiskistofu. Óskað er eftir framkvæmdarleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Afgreiðslu frestað
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

Nefndin óskar eftir áliti heilbrigðiseftirlitsins áður en málið fer lengra.

8.Fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar í landi Vermundastaða

Málsnúmer 2608002Vakta málsnúmer

Landeigandi Vermundastaða í Ólafsfirði, óskar eftir afstöðu Fjallabyggðar til þess að hafin verði skipulagsvinna vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar í landi jarðarinnar.
Samþykkt
Nefndin tekur jákvætt í erindið og samþykkir að hafin verði skipulagsvinna fyrir frístundarbyggð á kostnað landeiganda.

9.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að útboðsgögnum vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð 2026-2029 en fyrri samningar eru nú útrunnir.
Vísað til bæjarráðs
Nefndin leggur til að hafin verði vinna við endurskipulagningu á snjómokstri með hagræðingu og nútímavæðingu í huga. Þeirri vinnu þarf að ljúka fyrir maí 2027, svo hægt sé að bjóða verkið út. Samhliða verði unnið að lausn varðandi snjómokstur veturinn 2026 - 2027.

10.Samgöngur og skipulag

Málsnúmer 2608011Vakta málsnúmer

Meðfylgjandi er bréf frá Vegagerðinni til sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins varðandi samgöngur og skipulag.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:45.