Bæjarráð Fjallabyggðar

935. fundur 02. október 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Losun úr fráveitu Fjallabyggðar 2026

Málsnúmer 2608042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um stöðu holræsahreinsunar 2026.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fyrir liggur minnisblað frá Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs um stöðu holræsahreinsunar á Siglufirði og Ólafsfirði sem staðið hefur frá því seint á árinu 2024 þar til nú að þeim er lokið. Verkið hefur orðið dýrara því það kom í ljós í sumar að holræsakerfið í Ólafsfirði var yfirfullt af sandi, grjóti og ýmsu drasli. Það tók því lengri tíma að hreinsa kerfið en áætlað var. Holræsakerfin á Siglufirði og Ólafsfirði eru nú betur í stakk búin að taka við rigningarvatni eins og þeim er ætlað, ekki síst í stórrigningum. Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fyrir minnisblaðið og leggur til að sett verði frétt á heimasíðu Fjallabyggðar með þeim myndum sem fylgja málinu. Það getur valdið stórtjóni á fasteignum ef fráveitulagnir stíflast af allskonar drasli sem á alls ekki heima í fráveitulögnum.

2.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Svör við spurningum á bæjarstjórnarfundi 17. september.
Samþykkt
Fyrir liggja svör frá meirihluta bæjarráðs vegna spurninga frá fulltrúa D- listans á bæjarstjórnarfundi 17. september s.l. og eru þau birt með fundargerðinni.

Tómas Atli Einarsson fulltrúi D-lista bókaði eftirfarandi:

"Fulltrúi D-lista telur svör meirihlutans ekki skýra hvaða gögn og samanburður studdu tillöguna um eigin rekstur skíðasvæðisins 3. september.

Tilvísun til ástands svæðisins sýnir ekki ein og sér hvers vegna sú leið hafi verið óumflýjanleg, enda kemur fram að rekstraráætlun og mat á fjárþörf hafi verið enn í vinnslu þegar svörin voru samin.

Jafnframt er staðfest að ákveðið var að leggja lögfræðiráðgjöfina hvað varðar jafnræði bjóðenda ekki fram á fundinum og að formaður synjaði frekari bókun, án þess að tiltekin regla sé nefnd til stuðnings. Samþykki mitt á frágangi fundargerðar fól ekki í sér samþykki á efni bókunar meirihlutans eða afturköllun athugasemda við málsmeðferðina. Óskað er eftir að gögn um forsendur tillögunnar verði lögð fram og leiðréttingarkrafan fái efnislega, rökstudda afgreiðslu."



3.Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd

Málsnúmer 2609103Vakta málsnúmer

Tilnefna þarf fulltrúa í vatnasvæðanefnd.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð óskar eftir því við Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að tilnefna fulltrúa Fjallabyggðar í Vatnasvæðanefnd hjá Umhverfisstofnun.

4.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026 - 2030

Málsnúmer 2605056Vakta málsnúmer

Fyrir liggur eftirfarandi tillaga að fulltrúum í stýrihóp um heilsueflandi samfélag:

Fulltrúar í Stýrihópi um heilsueflandi samfélag 2026-2030

Leik- og grunnskóli:
Aðalmaður: María Sölvadóttir.
Varamaður: Björk Óladóttir.

Heilsugæsla:
Aðalmaður: Harpa Hlín Jónsdóttir.
Varamaður: Elfa Sif Kristjánsdóttir.

Félög eldri borgara:
Aðalmaður: Jónína Kristjánsdóttir.
Varamaður: Hafdís Elísabet Jónsdóttir.
Aðalmaður: Ólafur Þór Ólafsson.
Varamaður: Brynhildur Bjarkardóttir.

Íþróttahreyfingin (UÍF)
Aðalmaður: Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir.
Varamaður: Kristján Hauksson.

Fjallabyggð
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi tillögu og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs vegna útboðs á snjómokstri í Fjallabyggð 2026-2029.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar fyrir framlögð gögn og heimilar sviðsstjóra að auglýsa opið útboð í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

6.Stuðningur við Flugklasann Air66N 2027 - 2029

Málsnúmer 2609071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ósk um stuðning við Flugklasann Air66N 2027. Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir stuðningi sveitarfélagsins að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029).
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð tekur vel í beiðni Markaðsstofunar vegna Flugklasans Air66N um framlag næstu þrjú árin sem áætluð eru kr. 1.000.000- á hverju ári. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

7.Umsókn um styrk til kaupa á nýju ómtæki fyrir HSN í Fjallabyggð

Málsnúmer 2606062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um styrk til kaupa á nýju ómtæki fyrir HSN í Fjallabyggð. Áætlaður kostnaður við kaup á ómskoðunartækinu ásamt nauðsynlegum aukabúnaði er um 12-14 milljónir króna. Hollvinafélag HSN í Fjallabyggð leitar því eftir stuðningi einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila til að gera þetta mikilvæga verkefni að veruleika.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

8.Umsókn um styrk vegna tónlistarviðburðar

Málsnúmer 2609102Vakta málsnúmer

Fyrir liggur styrkbeiðni frá Brimsölum í Ólafsfirði vegna verkefnisins Fjölmenning í Fjallabyggð. Verkefnið Fjölmenning í Fjallabyggð byggir á 40 ljósmyndum og frásögnum fólks af erlendum uppruna sem  býr í Fjallabyggð og hefur það að markmiði að gera fjölbreytileika samfélagsins sýnilegri og skapa vettvang fyrir samtal og samveru. Einnig verður Pálínuboð og tónlistaratriði.
Samþykkt
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með framlagið og hvetur íbúa til að fjölmenna á viðburðinn um helgina. Bæjarráð samþykkir að styrkja viðburðinn um kr. 150.000.

9.Skemmtiferðakaupstefna Seatrade 2026

Málsnúmer 2609076Vakta málsnúmer

Fyrir liggur stutt samantekt frá Cruise Iceland frá skemmtiferðakaupstefnu í Las Palmas
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 2609077Vakta málsnúmer

Boðað er til aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, miðvikudaginn 7. október kl. 13:00-14:30.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

11.Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2026

Málsnúmer 2609078Vakta málsnúmer

Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa
verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2026. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag
í nóvember ár hvert og tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðarslysum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

12.Virkjum íbúana - samfélagshús

Málsnúmer 2609104Vakta málsnúmer

Verkefnið Virkjum íbúana miðar að því að auka virkni, samveru og þátttöku íbúa á Norðurlandi eystra með því að efla samfélagshús og aðra staðbundna samkomustaði sem lifandi miðstöðvar í heimabyggð.

Eingöngu sveitarfélög á Norðurlandi eystra innan SSNE eða stofnun þess geta sent inn verkefnahugmyndir. Félagasamtök, íbúahópar og einstaklingar geta verið samstarfsaðilar, en ekki aðalumsækjendur.

Frestur til að skila inn verkefnahugmyndum er 29. október 2026.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna möguleika á þátttöku Fjallabyggðar í verkefninu og hugsanlegra samstarfsaðila.

13.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar um 66. mál - Leit að olíu og gasi. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 6. október nk.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

14.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 336. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 22.09.2026, 13. fundar framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar frá 23.09.2026, 23. fundar fræðslu- og frístundanefndar frá 23.09.2026 og 36. fundur stýrihóps heilsueflandi samfélags frá 29. september 2026.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:45.