Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í endurbætur á þaki Sundlaugar Siglufjarðar skv. útboðsgögnum AVH.
Endurnýja skal núverandi kraftsperrur yfir sundlaugarsal og endurnýja þakklæðningu á öllu húsinu ásamt uppsetningu veggja í þakrými.
Helstu magntölur:
Endurnýjun á kraftsperrum |
38 stk |
Rif á bárustáli |
750 m² |
Rif á þakklæðningu |
450 m² |
Rif á loftaklæðningu |
445 m² |
Bárustál |
750 m² |
Verktími er frá 15. júní 2025 til 30. ágúst 2025.
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 25. apríl nk. Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 27. maí og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag hjá AVH í Kaupangi á Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.
https://utbodsvefur.is/endurbaetur-a-thaki-sundlaugar-siglufjardar/
