Fjallabyggð auglýsir eftir verkefnastjóra framkvæmda við skipulags – og framkvæmdasvið

Fjallabyggð auglýsir eftir verkefnastjóra framkvæmda við skipulags – og framkvæmdasvið.

Undir sviðið falla meðal annars byggingarmál, eignaumsjón, lóða- og skipulagsmál, framkvæmdir, umhverfismál, Þjónustumiðstöð, veitur og hafnir.

Helstu verkefni verkefnastjóra framkvæmda:

  • Eftirlit og eftirfylgni með framkvæmdum á vegum Fjallabyggðar
  • Samskipti við verktaka
  • Úttekt við verklok framkvæmda
  • Umsjón með minniháttar viðhaldi eigna Fjallabyggðar í samráði við stofnanir
  • Vinna við gerð framkvæmda – og kostnaðaráætlanir í samráði við sviðsstjóra

Þekkingar- og hæfnikröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Reynsla af verkefnum sem falla að starfinu
  • Reynsla af verkefnamiðuðum vinnubrögðum er skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til 14. maí n.k.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfi umsækjenda.

Umsóknum skal skilað á netfang bæjarstjóra, thorirh@fjallabyggd.is í síðasta lagi miðvikudaginn 14. maí.

Nánari upplýsingar veita:

Þórir Hákonarson settur bæjarstjóri ´og Gísli D Sævarsson sviðsstjóri gisli.david.saevarsson @fjallabyggd.is