Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

28. fundur 02. maí 2016 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður, S lista
  • Guðný Kristinsdóttir varaformaður, F lista
  • Hilmar Þór Hreiðarsson aðalmaður, F lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir aðalmaður, D lista
  • Steingrímur Ó. Hákonarson aðalmaður, D lista
  • Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að inn á dagskrá fundarins yrði tekið mál er varðar leiguhúsnæði fyrir félagsmiðstöðina NEON; málsnr.: 1506047. Var það samþykkt.
Sóley Anna Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista boðaði forföll. Enginn varamaður kom í hennar stað.

1.Vinnuskóli Fjallabyggðar sumarið 2016

Málsnúmer 1604081Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir starfsemi Vinnuskólans á komandi sumri.
Vinnuskólinn hefst 7. júní og verður þeim sem skrá sig fyrir 20. maí tryggð vinna sem hér segir;
8. bekkur: 4 vikur 1/2 daginn
9. bekkur: 5 vikur allan daginn (byrja 1. júlí)
10. bekkur og fyrsti bekkur framhaldsskóla: 8 vikur allan daginn.
Laun verða sem hér segir:
8. bekkur: 639 kr. m/orlofi
9. bekkur: 730 kr. m/ orlofi
10. bekkur: 1.095 kr. m/orlofi
Fyrsti bekkur framhaldsskóla: 1.497 kr. m/orlofi.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Hauki fyrir upplýsingarnar.

2.Leiguhúsnæði fyrir NEON félagsmiðstöð

Málsnúmer 1506047Vakta málsnúmer

Samkvæmt samningi um leigu á húsnæði undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar NEON á Siglufirði geta aðilar tekið upp viðræður um framlengingu samnings um eitt ár og þarf niðurstaða að liggja fyrir um mánaðarmótin apríl/ maí 2016. Í ljósi þess og þar sem ekki liggur fyrir að lausn sé í sjónmáli um framtíðarhúsnæði undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar leggur fræðslu- og frístundanefnd til við bæjarráð að teknar verði upp viðræður við leigusala Lækjagötu 8 um framlengingu á samningnum.

3.Samstarfssamningur um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku

Málsnúmer 1604089Vakta málsnúmer

Lagður fram samstarfssamningur við Golfklúbb Fjallabyggðar um rekstur vallarins Skeggjabrekku Ólafsfirði. Nefndin leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur.

4.Rekstur golfvallar að Hóli, Siglufirði

Málsnúmer 1603118Vakta málsnúmer

Lagður fram samingur við Golfklúbb Siglufjarðar vegna reksturs á golfvellinum við Hól. Nefndin leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur.

Guðný Kristinsdóttir mætti á fundinn 17:20

Haukur Sigurðsson vék af fundi kl. 17:30

5.Skóladagatal 2016 - 2017

Málsnúmer 1603149Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu Jónína Magnúsdóttir skólastjóri grunnskólans, Mundína Kristinsdóttir, fulltrúi starfsmanna, í forföllum Sigurlaugar Guðjónsdóttur og Hugborg Inga Harðardóttir fullltrúi foreldra.

Vegna dagsetningar á haustfundi KSNV 7. október verður að færa skipulagsdag grunnskólans sem áður hafði verið skipulagður 16. september. Leikskólinn verður að halda þessum degi, 16. september, þar sem búið er að skipuleggja fræðslu á vegum MMS um læsistefnu og í samvinnu við Dalvíkurbyggð.
Nefndin samþykkir breytingu á skóladagatali.
Nefndin leggur til að komið verði á föstum forvarnardegi þar sem m.a. verði farið yfir viðbragðsáætlun í samgöngumálum á milli byggðarkjarna.

6.Umbótaáætlun Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1604017Vakta málsnúmer

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðfest umbótaáætlun grunnskólans. Í júní 2017 mun ráðuneytið óska eftir greinargerð um framkvæmd umbótaáætlunar fram að þeim tíma.

7.Niðurstöður úr starfsmannakönnun

Málsnúmer 1604088Vakta málsnúmer

Jónína Magnúsdóttir gerði grein fyrir niðurstöðum úr starfsmannakönnun sem lögð var fyrir í mars sl. Í könnuninni eru starfsmenn spurðir um; stefnumótun, stjórnun, starfsþróun, jafnrétti/jafnræði, starfsanda, vinnuaðstöðu, álag og áreitni og einelti.

8.Skólamáltíðir, útboð

Málsnúmer 1604082Vakta málsnúmer

Samningar v/ skólamáltíða renna út eftir þetta skólaár. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að farið verði í það að gera nýja verðkönnun.

9.Samningur um skóla- og frístundaakstur

Málsnúmer 1604083Vakta málsnúmer

Samningur um skólaakstur er að renna út. Í samningnum er ákvæði um að heimilt sé að framlengja honum um eitt ár. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að það ákvæði verði nýtt.

Jónína, Mundína og Hugborg Inga véku af fundi kl. 18:00

10.Hreyfivika UMFI - 2016

Málsnúmer 1604057Vakta málsnúmer

Hreyfivika UMFÍ verður að þesu sinni 23. - 29. maí nk. Hreyfivika UMFÍ snýst öðru fremur um það að kynna kostina sem felast í virkri hreyfingu og íþróttum. Einn liður í vikunni er sundkeppni á milli sveitarfélaga.

11.Rekstraryfirlit mars 2016

Málsnúmer 1604077Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar - mars 2016. Fræðslu- og uppeldismál: Rauntölur, 181.139.448 kr. Áætlun, 184.586.372 kr. Mismunur; 3.446.924 kr. Æskulýðs- og íþróttamál: Rauntölur, 61.175.951 kr. Áætlun 61.240.560 kr. Mismunur; 64.609 kr.

Fundi slitið.