Bæjarstjórn Fjallabyggðar

223. fundur 15. desember 2022 kl. 17:00 - 18:58 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti bæjarstjórnar, D-lista
  • Tómas Atli Einarsson bæjarfulltrúi, D lista
  • Helgi Jóhannsson bæjarfulltrúi, H lista
  • Guðjón M. Ólafsson bæjarfulltrúi, A lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir bæjarfulltrúi, A lista
  • Þorgeir Bjarnason bæjarfulltrúi, H lista
  • Arnar Þór Stefánsson bæjarfulltrúi, A lista
Starfsmenn
  • Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri
  • Bragi Freyr Kristbjörnsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Bragi Freyr Kristbjörnsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Í upphafi fundarins bar forseti bæjarstjórnar upp tillögu um dagskrárbreytingu, á þann veg að taka fyrir mál 2212031 - Framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála samkvæmt barnaverndarlögum og setja það sem 9. dagskrárlið.
Samþykkt með 7 greiddum atkvæðum.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 6.desember 2022

Málsnúmer 2212001FVakta málsnúmer

Fundargerð bæjarráðs er í 17 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 3 og 4.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Guðjón M. Ólafsson, Sigríður Ingvarsdóttir, Helgi Jóhannsson og S. Guðrún Hauksdóttir tóku til máls undir lið nr. 4.
  • 1.1 2211072 Umsókn um samstarf og stuðning vegna undirbúnings á verkefni um nærandi ferðaþjónustu í Fjallabyggð
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 6.desember 2022 Bæjarráð þakkar Ólöfu Ýrr fyrir greinargóða kynningu á verkefninu. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 500.000 á árinu 2023. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leiða verkefnið fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 1.2 2211071 Umsókn um stuðning vegna MICE
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 6.desember 2022 Bæjarráð þakkar Ólöfu Ýrr, fulltrúa MICE, fyrir greinargóða kynningu á verkefninu. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 250.000 á árinu 2023. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leiða verkefnið fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 1.3 2211114 Fjárhagsáætlun 2023 - Seinni umræða
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 6.desember 2022 Bæjarráð samþykkir að vísa breytingartillögu vegna fjárhagsáætlunar 2023 til seinni umræðu í bæjarstjórn Fjallabyggðar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 1.4 2211118 Samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Fjallabyggðar 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 6.desember 2022 Bæjarráð vísar tillögunni til umræðu í bæjarstjórn. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022.

Málsnúmer 2212006FVakta málsnúmer

Fundargerð bæjarráðs er í 12 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 3, 4, 5 7, 9, og 11.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Sigríður Ingvarsdóttir tók til máls undir 5. lið fundargerðarinnar.
  • 2.1 2204013 Erindi frá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar vegna aðstöðuleysis.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun 2022 að fjárhæð kr. 1.700.000. Styrkurinn gjaldfærist á mfl./deild 06810-9291 og verður mætt með lækkun á handbæru fé. Bæjarráð ítrekar að styrkurinn verði greiddur gegn framvísun kvittana fyrir aðstöðuna. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.2 2210100 Fjárhagsáætlun Slökkviliðs Fjallabyggðar 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2022 að fjárhæð kr. 5.000.000. Bifreiðin verður eignfærð í Eignasjóði og viðaukanum verður mætt með lækkun á framkvæmdakostnaði við íþróttamiðstöðina á Siglufirði og hefur viðaukinn ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.3 2211092 Umsókn um lóð - Ránargata 2
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við úthlutunina fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.4 2211059 Umsókn um lóð - Bakkabyggð 4
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við úthlutunina fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.5 2208066 Umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Lagt fram til kynningar. Bæjarráð ítrekar bókun sína frá 757. fundi sínum. Bókun fundar Bæjarstjórn veitir bæjarráði umboð til fullnaðarafgreiðslu á samningi um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni í samræmi við 32. grein samþykktar um stjórn Fjallabyggðar.
    Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 2.7 2210022 Styrkumsóknir í formi afnota af íþróttamannvirkjum 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð samþykkir tillögu að úthlutun frítíma í íþróttamiðstöð Fjallabyggðar. Bæjarráð óskar eftir að frítími umsækjenda verði bókfærður sem styrkur á viðkomandi aðila/félag. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.9 2211112 Gjaldskrár 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Í ljósi fjölda áskoranna íbúa og hagsmunaaðila samþykkir bæjarráð að beina því til bæjarstjórnar að holræsagjald og vatnsgjald verði lækkað um 0,015%. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 2.11 2212018 Framkvæmdastyrkur 2023 - Pálshús
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 772. fundur - 13. desember 2022. Bæjarráð samþykkir að styrkja Undraveröld Pálshúss um kr. 1.000.000,- Bókun fundar Helgi Jóhannsson vék af fundi undir þessum lið.
    Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.

3.Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 142. fundur - 29. nóvember 2022.

Málsnúmer 2211020FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 3, og 4.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
  • 3.1 2211128 Reglur Fjallabyggðar um stuðningsþjónustu
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 142. fundur - 29. nóvember 2022. Lögð fram tillaga að reglum um stuðningsþjónustu. Markmið stuðn­ings­þjón­ustu (fé­lags­legr­ar heima­þjón­ustu) er að efla fólk til sjálfs­hjálp­ar og gera því kleift að búa sem lengst í heima­húsi við sem eðli­leg­ast­ar að­stæð­ur. Þjón­ust­an er veitt þeim sem þarfn­ast henn­ar vegna skertr­ar færni, fjöl­skyldu­að­stæðna, veik­inda, fötl­un­ar o.fl. Stuðn­ings­þjón­usta get­ur t.d. ver­ið fólg­in í: Að­stoð við per­sónu­lega um­hirðu, að­stoð við heim­il­is­hald, fé­lags­leg­ur stuðn­ing­ur, heimsend­ing mat­ar, að­stoð við þrif, að­stoð við umönn­un barna og ung­menna. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 3.2 2211129 Regl­ur Fjallabyggðar um stoð­þjón­ustu við fatl­að fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarf­ir
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 142. fundur - 29. nóvember 2022. Lögð fram tillaga að reglum um stoð­þjón­ustu við fatl­að fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarf­ir. Í reglunum er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita. Markmið stoð­þjón­ustu við fatl­að fólk samkvæmt reglunum er að veita fötluðu fólki stuðning til að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir þess. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 3.3 2211130 Regl­ur Fjallabyggðar um stuðn­ing við börn og fjöl­skyld­ur þeirra
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 142. fundur - 29. nóvember 2022. Lögð fram tillaga að reglum um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Í reglunum er kveðið á um útfærslu og tilhögun á stuðningi til foreldra eða forsjáraðila við uppeldi barna eða til að styrkja þá í uppeldishlutverki sínu. Einnig er kveðið á um stuðning til handa börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa aðstoð vegna fötlunar, skerðinga, langvinnra veikinda og/eða félagslegra aðstæðna. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 3.4 2211131 Regl­ur um bein­greiðslu­samn­inga við fatl­að fólk og for­sjár­að­ila fatl­aðra barna í Fjallabyggð
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 142. fundur - 29. nóvember 2022. Lögð fram tillaga að reglum um bein­greiðslu­samn­inga. Reglurnar grundvallast á ákvæðum laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 10. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og taka til útfærslu á þjónustu sem Fjallabyggð er skylt að veita fötluðu fólki samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þjónusta í formi beingreiðslusamnings er háð faglegu mati félagsmáladeildar Fjallabyggðar um að beingreiðslusamningur sé hentugt þjónustuform til að mæta þjónustuþörf viðkomandi. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.

4.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 92. fundur -1. desember 2022.

Málsnúmer 2211017FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 2, 3 og 4.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
  • 4.2 2210040 Styrkumsóknir 2023 - Rekstrarstyrkir til safna og setra.
    Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 92. fundur -1. desember 2022. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir að vísa umsögn til bæjarráðs. Bókun fundar Helgi Jóhannsson vék af fundi undir afgreiðslu rekstrarstyrks Fjallasala ses.
    Bæjarstjórn samþykkir með öllum greiddum atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 4.3 2210041 Styrkumsóknir 2023 - Hátíðarhöld í Fjallabyggð
    Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 92. fundur -1. desember 2022. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir að vísa umsögn til bæjarráðs. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 4.4 2210019 Erindi frá Síldarminjasafni Íslands - Beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings
    Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 92. fundur -1. desember 2022. Erindi Síldarminjasafns Íslands ses til Bæjarráðs Fjallabyggðar um endurnýjun rekstrarsamnings var kynnt og tekið til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir að vísa umsögn til bæjarráðs. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.

5.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 93. fundur - 5. desember 2022.

Málsnúmer 2212002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í einum lið sem ekki þarfnast afgreiðslu.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar

6.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 118. fundur - 5. desember 2022.

Málsnúmer 2212004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum.

Til afgreiðslu er liður 1.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Helgi Jóhannsson, Sigríður Ingvarsdóttir, Guðjón M. Ólafsson og S. Guðrún Hauksdóttir tóku til máls undir 1. lið fundargerðarinnar.
  • 6.1 2209027 Bréf til sveitarfélaga - Betri vinnutími í leikskólum
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 118. fundur - 5. desember 2022. Bréf stýrihópsins lagt fram til kynningar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022.

Málsnúmer 2211021FVakta málsnúmer

Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar er í 19 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 4, 5, 6, 7, 8 og 13.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

S. Guðrún Hauksdóttir tók til máls undir 14. lið fundargerðarinnar. Helgi Jóhannsson, Arnar Þór Stefánsson, Guðjón M. Ólafsson, S. Guðrún Hauksdóttir og Sigríður Ingvarsdóttir tóku til máls undir 16. lið fundargerðarinnar. Tómas Atli Einarsson tók til máls undir 1. og 16. lið fundargerðarinnar.
  • 7.1 2111057 Deiliskipulag hafnar og athafnasvæðis á Siglufirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Nefndin samþykkir framlagða tillögu að afmörkun deiliskipulags og felur tæknideild að hefja vinnu við skipulagið í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.2 2009001 Deiliskipulag lóða undir smáhýsi í Skarðsdal
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Nefndin samþykkir að tillögurnar verði kynntar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 4.mgr. 40.gr. og 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.3 2210003 Umsókn um byggingarleyfi - Suðurgata 49 Sigufirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Nefndin samþykkir umsókn um byggingarleyfi þegar brugðist hefur verið við athugasemdum og svörum við þeim, í samráði við tæknideild. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.4 2211002 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi-Fossvegur 9 Siglufirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Erindi samþykkt. Bókun fundar Arnar Þór Stefánsson vék af fundi undir afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
    Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.5 2211003 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Laugarvegur 22 Siglufirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Erindi samþykkt. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.6 2211044 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Lindargata 16 Siglufirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Erindi samþykkt. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.7 2211124 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Grundargata 16
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Erindi samþykkt. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.8 2211120 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Túngata 25
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki annarra eigenda í húsinu. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.
  • 7.13 2211032 Stækkun kirkjugarðs við Saurbæjarás
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 292. fundur - 7. desember 2022. Nefndin samþykkir stækkun á kirkjugarði skv. áfanga 2 til norðurs í samræmi við afstöðumynd. Nauðsynlegt er að deiliskipuleggja svæðið. Tæknideild er falið að hefja þá vinnu sem mun byggja á hönnun sem unnin var 2009. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu.

8.Flöggun íslenska fánans við ráðhús Fjallabyggðar

Málsnúmer 2210057Vakta málsnúmer

Á 221. fundi bæjarstjórnar var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. Málið er lagt fyrir að nýju.

Lagt er fyrir minnisblað bæjarstjóra um fyrirkomulag flöggunar við ráðhús Fjallabyggðar.

Til máls tóku Sigríður Ingvarsdóttir, Guðjón M. Ólafsson og S. Guðrún Hauksdóttir.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir tillögur bæjarstjóra með 7 atkvæðum.

9.Framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála samkvæmt barnaverndarlögum

Málsnúmer 2212031Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga bæjarstjóra um að veita starfsmönnum barnaverndarþjónustu Fjallabyggðar fullt umboð til fullnaðarafgreiðslu barnaverndarmála frá og með 1. janúar 2023, þegar eldri barnaverndarnefndir láta af störfum. Um er að ræða umboð til könnunar, meðferðar og ákvörðunartöku í einstökum barnaverndarmálum og öðrum málum þar sem barnaverndarþjónusta fer lögum samkvæmt með ákvörðunarvald.

S. Guðrún Hauksdóttir, Guðjón M. Ólafsson og Tómas Atli Einarsson tóku til máls.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 7 atkvæðum.

10.Innleiðing breyttrar sorphirðu vegna nýrra laga um meðhöndlun úrgangs.

Málsnúmer 2212025Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um innleiðingu breyttrar sorphirðu vegna gildistöku nýrra laga um meðhöndlun úrgangs, þar sem lagt er til að sá starfshópur sem skipaður hefur verið, fái umboð til að hefja innleiðingarferli í samræmi við nýja löggjöf um meðhöndlun úrgangs ásamt því að undirbúa væntanlegt útboð sem fara þarf í. Fjárútlát tengd verkefninu verða borin undir bæjarráð.

Sigríður Ingvarsdóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Helgi Jóhannsson tóku til máls.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að fela starfshópnum að hefja innleiðarferlið.

11.Fjárhagsáætlun 2023 - Seinni umræða

Málsnúmer 2211114Vakta málsnúmer

Síðari umræða um fjárhagsáætlun 2023-2026.

Til máls tóku Sigríður Ingvarsdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Helgi Jóhannsson og S. Guðrún Hauksdóttir.

Samþykkt
Bæjarstjóri fór yfir helstu niðurstöður áætlunar og leiðréttingar sem gerðar hafa verið á milli umræðna. Að því loknu lagði bæjarstjóri fram eftirfarandi bókun:

Ég vil byrja á því að þakka fulltrúum allra flokka hér, forstöðumönnum hjá Fjallabyggð, og ekki síst deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála, fyrir mikla og góða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Það að koma saman fjárhagsáætlun er ekki einfalt verk, óvissuþættirnir margir og fjölmörg verkefni sem þarf að horfa til varðandi forgangsröðun fjármuna. Því var einstaklega ánægjulegt við alla þessa vinnu að finna hve samstaðan var mikil meðal bæjarfulltrúa, hvort sem þeir tilheyrðu minnihluta eða meirihluta, um að gera sitt allra besta bæjarfélaginu til hagsbóta. Samstarfið í gegnum allt vinnuferlið hefur verið einstaklega gott og vinnufundir og nefndarfundir skilað góðum árangri.
Fjárhagsáætlun ársins er leiðarljós okkar sem berum ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins og grundvöllur þess að viðeigandi fjárheimildir séu til staðar til að rekstur Fjallabyggðar gangi eðlilega fyrir sig. Það er mikilvægt að það sé öflugt og skilvirkt eftirlit til staðar með framkvæmd fjárhagsáætlunar hverju sinni og að til sé ábyrgt vinnulag til að bregðast við óvæntum breytingum í ytra umhverfi sem og breytingum sem verða í rekstri sem leiða til frávika.
Sú fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram sýnir að aðhalds verður gætt í rekstri á komandi ári og grunnur lagður að enn frekari uppbyggingu á komandi árum á margvíslegum sviðum. Það er fagnaðarefni hve staða Fjallabyggðar er sterk, skuldir litlar og innviðir öflugir.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar
Áætlað er að rekstrarafkoma bæjarsjóðs fyrir árið 2023 verði jákvæð um 126 millj.kr.
Rekstrarafkoma samstæðunnar, fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er áætluð jákvæð um 219 millj.kr.
Útsvarsprósentan helst óbreytt á milli ára, þ.e. 14.48%
Skatttekjur ársins 2023 eru áætlaðar 1.748 millj.kr. en útkomuspá ársins 2022 er 1.541 millj.kr.
Heildartekjur A- og B-hluta 2023 verða 3.888 millj.kr. en eru áætlaðar 3.736 millj.kr. í útgönguspá ársins 2022.
Rekstrargjöld A- og B-hluta vegna ársins 2023 eru áætluð 3.492 millj.kr. en eru 3.142 millj.kr. fyrir árið 2022.
Heildareignir sveitarfélagsins eru áætlaðar 6.705 millj. kr. og eigið fé er 4.416 millj.kr. eða 65,9% eiginfjárhlutfall.
Skuldaviðmið A-hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er áætlað 25,6% fyrir árið 2023.
Vaxtaberandi langtímaskuldir árið 2023 eru áætlaðar 91,7 milljónir, en verða 112,5 milljónir í árslok 2022.
Veltufé frá rekstri samstæðunnar er áætlað 614 millj. kr. sem eru 15,8% af heildartekjum.
Handbært fé í árslok 2023 er áætlað 562 millj.kr.
Almennt munu gjaldskrár hækka um 7% á næsta ári, en nýjasta þjóðhagsspá gerir ráð fyrir 8,2% verðbólgu árið 2023 þannig að hækkanir á gjaldskrám eru lægri en spáð verðbólga.

Framkvæmdir og viðhald eigna
Á komandi ári er áætlað að fjárfestingar nemi 308 milljónum og verða þær fjármagnaðar með handbæru fé.
Farið verður í framkvæmdir við nýja viðbyggingu við húsnæði Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Næsta haust mun starf nemenda í 5. bekk flytjast í starfsstöð grunnskólans í Ólafsfirði þannig að frá þeim tíma mun miðstigið vera sameinað. . Bætt verður verulega í tölvuvæðingu á unglingastigi með kaupum á chromebookvélum fyrir nemendur.
Einnig verður lagt fjármagn í bætt umferðaröryggi og ásýnd Aðalgötu í Ólafsfirði.
Það er ánægjulegt að verið sé að fara í framkvæmdir varðandi íbúðarhúsnæði í báðum bæjarkjörnum. Tvö einbýlishús eru í byggingu í Bakkabyggð í Ólafsfirði og búið er að úthluta 7 einbýlishúsalóðum til viðbótar þar. Á gamla malarvellinum á Siglufirði hefur öllum lóðum verið úthlutað, fyrir allt að 27 íbúðir og gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist næsta vor. Nú er unnið að undirbúningi gatnagerðar á malarvellinum. Einnig er búið að úthluta lóðum fyrir 10 íbúðir við Eyrarflöt á Siglufirði í par- og raðhúsum. Því sjáum við fram á langþráða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í báðum bæjarkjörnum.
Ný geislatæki til hreinsunar á vatni verða sett upp við Múla- og Hvanneyrarlind auk þess verður unnið að úrbótum á eftirlitskerfi dælubrunna í holræsakerfi bæjarins.
Áfram verður haldið með endurnýjun götulýsingar með LED-væðingu. Eins verða miklar framkvæmdir á nýju ári við endurnýjun gangstétta og gerð nýrra göngustíga.
Í fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir stórauknu fé, eða tæplega 150 milljónum, til viðhalds mannvirkja enda er mikil uppsöfnuð viðhaldsþörf mannvirkja í bæjarfélaginu. Til samanburðar fóru 114 milljónir til viðhalds á árinu 2022.

Gjaldskrárbreytingar
Það er virkilega ánægjulegt að greina frá ákveðnum lækkunum á gjaldskrám bæjarins til að mæta þeim álögum sem fasteignaeigendur verða fyrir samhliða hækkun á fasteignamati á landinu öllu. Þannig mun fasteignaskattur og lóðaleiguprósenta lækka um 5%. Auk þess mun holræsa-/fráveitugjaldaprósenta lækka úr 0,29% í 0,275%
Vatnsskattsprósenta fasteigna lækkar úr 0,29% í 0,275%
Þjónustugjöld hækka um 7 %
Aukinn afsláttur verður veittur af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Einnig verður komið til móts við eldri borgara og öryrkja með hækkun tekjuviðmiða um 14% að meðaltali vegna afsláttar á fasteignaskatti.
Ný lög um meðhöndlun úrgangs, sem kalla á breytta gjaldskrá, taka gildi á næsta ári. Þar sem lögum samkvæmt mega bæjarfélög ekki niðurgreiða kostnað við meðhöndlun úrgangs. Sorphirðugjöld hækka því úr kr. 47.340 - í kr. 51.600.

Ýmis verkefni
Hvað varðar ýmis önnur verkefni er vert að nefna að fjárframlög til menningatengdra verkefna eru talsvert aukin og er það vel.
Hjá Fjallabyggð höfum við haft þá venju að auglýsa eftir styrkjum í fjóra styrkflokka þ.e. styrki til fræðslumála, styrki til menningartengdra verkefna, rekstrarstyrki til safna og setra og styrki til hátíðarhalda. Að þessu sinni var einnig auglýst eftir styrkjum í nýjan styrkjaflokk sk. græna styrki. Skilyrði styrkveitinga úr þessum flokki eru að þau verkefni sem styrkt eru nýtist samfélaginu í Fjallabyggð og séu til þess fallin t.d. að bæta umhverfið, að draga úr orkunotkun, mengun eða losun gróðurhúsalofttegunda og /eða bæta ástand og útlit opinna svæða eða fólkvanga innan sveitarfélagsins.
Fjöldi góðra umsókn barst í alla þessa styrkjaflokka og verður úthlutun tilkynnt í byrjun næsta árs.
Bæjarstjórn hefur samþykkt sérstakan stuðning við starfsmenn Leikskóla Fjallabyggðar sem eru jafnframt í námi i leikskólafræði í viðleitni til að fjölga kennurum með sérhæfingu í leikskólafræði til framtíðar. Það er ósk mín að fólk með einlægan áhuga á þessu starfi muni nýta sér þann myndarlega stuðning sem í boði er til að sækja sér menntun í leikskólafræði og verða framtíðarstarfsmenn hjá Leikskóla Fjallabyggðar.
Þá hefur bæjarstjórn samþykkt veglegt fjárframlag eða 30 milljónir króna á næstu 5 árum til kaupa á nýju björgunarskipi í stað gamla Sigurvins sem nú er 34 ára. Með kaupum á nýju og öflugra björgunarskipi er betur verið að tryggja öryggi sjófarenda og styrkja björgunarsvæði á hafsvæðinu úti fyrir Norðurlandi. Björgunarbátajóður Siglufjarðar mun eiga og reka skipið
Það hefur verið góður skóli fyrir mig sem nýr bæjarstjóri Fjallabyggðar að fara í gegnum það ferli sem fjárhagsáætlunargerðin er. Það er mitt mat að þessi áætlun sé unnin af vandvirkni og endurspegli ábyrgan rekstur og rétta forgangsröðun. Fjárhagsáætlunin 2023 sem og þriggja ára áætlun bæjarfélagsins renna styrkum stoðum undir enn frekari uppbyggingu hér í Fjallabyggð og það eru góð tíðindi að íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 13 á árinu og vonandi sjáum við fram á enn frekari fjölgun, því hér er svo sannarlega gott að búa.

Að lokum vil ég þakka starfsfólki Fjallabyggðar fyrir óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins og bæjarstjórn allri fyrir traust og gott samstarf á árinu sem nú fer senn að renna sitt skeið á enda.
Ég vil að lokum óska bæjarfulltrúum og fjölskyldum þeirra, starfsfólki bæjarins og öllum íbúum Fjallabyggðar gleðiríkrar jólahátíðar.


Sigríður Guðrún Hauksdóttir forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarstjórnar:

Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar 2023 tekur mið af þeim efnahagslega veruleika sem nú blasir við sveitarfélögum og landsmönnum. Markmið nýrrar bæjarstjórnar hefur verið í samvinnu við starfsfólk sveitarfélagsins að leita allra leiða til þess að halda óskertu þjónustustigi við íbúana og auka það sem því var við komið.
Í fjárhagsáætluninni var einnig lagt mikið kapp á að lágmarka áhrif mikilla kostnaðarhækkana í samfélaginu á íbúa Fjallabyggðar.
Mikil umræða hefur verið um hækkun fasteignaskatta í samfélaginu sökum mikillar hækkunar fasteignamats á landinu öllu. Í fjárhagáætluninni er lagt til að fasteignaskattur, holræsagjald og vatnsgjald verði lækkuð til þess að koma til móts við miklar hækkanir á fasteignamati, ásamt því að afsláttur á fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verður hækkaður.
Gjaldskrár sveitarfélagsins hækka að mestu leyti í takt við þjóðhagsspá Hagstofunnar fyrir árið 2023, eða um 7%. Undanfarin ár hafa gjaldskrár sem snerta barnafólk og viðkvæma hópa verið stillt í hóf en nú verður ekki hjá því komist að hækka þessa gjaldskrár og ætti þessi óhjákvæmilega hækkun ekki að rýra samkeppnishæfni Fjallbyggðar gagnvart öðrum sveitarfélögum. Frístundastyrkur fyrir börn 4 ? 18 ára mun hækka um 5.000 kr og verða 45.000 kr, og áfram verður haldið að efla frístund í góðu samstarfi við íþróttarfélögin.
Nágrannasveitarfélög okkar hafa víðast hvar verið að boða meiri hækkanir en þær sem boðaðar eru í fjárhagsáætlun 2023 hjá Fjallabyggð. Hér munu íbúar Fjallabyggðar njóta þess að rekstur sveitarfélagsins hefur á síðustu árum verið ábyrgur og því er fjárhagsleg staða Fjallabyggðar mjög sterk.
Á vettvangi sveitarfélagsins er unnið mjög mikilvægt starf í þjónustu við íbúanna og svo mun áfram verða. Áfram verður unnið að verkefninu Sveigjanleg dagdvöl af fullum krafti og þar mun Fjallabyggð taka þátt í að þróa ramma að framtíðar fyrirkomulagi samhæfðar þjónustu við eldra fólk ásamt því að áfram verður unnið að Heilsueflandi samfélagi og í anda þess verður áfram gjaldfrjálst í sund og rækt fyrir eldri borgara og öryrkja.
Á þessu ári sem senn er á enda var opnuð ný og glæsileg félagsmiðstöð Neon og mun það verða eitt af verkefnum ársins 2023 að tryggja að þessi nýja og glæsilega aðstaða verði nýtt vel með það að markmiði að efla félagslíf yngri íbúa sveitarfélagsins.

Þegar kemur að fjárfestingum, sem eru áætlaðar um 308 milljónir króna, þá verður dregið úr fjárfestingum samanborið við fyrra ár, en á sama tíma er verið að auka fjármagn til viðhaldsverkefna. Það er mat bæjarstjórnar að mikilvægara sé að ná enn betur utan um fyrri fjárfestingar ásamt því að marka fjárfestingastefnu sveitarfélagsins í innviðum til framtíðar.
Að lokum vill forseti, fyrir hönd bæjarstjórnar, koma á framfæri þökkum til bæjarstjóra, nefndarmanna og starfsmanna sveitarfélagsins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og ánægjulegs samstarfs og óskar íbúum Fjallabyggðar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


Fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun borin undir atkvæði.

Framlögð áætlun samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 18:58.