Bæjarráð Fjallabyggðar

475. fundur 15. nóvember 2016 kl. 08:00 - 09:55 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Hugbúnaðarmál sveitarfélagsins

Málsnúmer 1611037Vakta málsnúmer

Deildarstjóri upplýsti bæjarráð um hugbúnaðarmál bæjarfélagsins, uppfærslur og gagnahýsingu í tengslum við fyrirspurn bæjarfulltrúa Kristins Kristjánssonar.

Bæjarráð óskar eftir minnisblaði um hugbúnaðar- og hýsingarmál bæjarfélagsins á næsta fundi.

2.Viðgerð á fráveituröri Primex

Málsnúmer 1610086Vakta málsnúmer





Lagt fram minnisblað deildarstjóra tæknideildar, dagsett 10. nóvember 2016, um viðgerð á fráveituröri Primex.

3.Fjárhagsáætlun 2017 og 2018-2020

Málsnúmer 1609020Vakta málsnúmer

Tekin fyrir eftirfarandi atriði vegna fjárhagsáætlunar 2017.

1. Félag um Ljóðasetur Íslands - rekstrarstyrkur.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 350 þúsund.

2. Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Bæjarráð telur rétt að eiga fund með stjórn setursins áður en ákvörðun um styrk verður ákveðin.

3. Fjallasalir ses (Sigurhæð ses) - uppbyggingarstyrkur.
Bæjarráð hafnar beiðni félagsins.
Bæjarráð minnir á að settar hafa verið 15,6 m.kr. í uppbyggingarstyrk á árinu 2016.

4. Björgunarsveitin Strákar - rekstrarstyrkur.
Bæjarráð samþykkir rekstrarstyrk að upphæð kr. 1 m.kr.

5. Björgunarsveitin Tindur - rekstrarstyrkur.
Bæjarráð samþykkir rekstrarstyrk að upphæð kr. 1 m.kr.

6. Slysavarnardeildin Vörn - endurnýjun húsnæðis.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir fundi með fulltrúum Varnar áður en ákvörðun verður tekin um styrk.

7. Kvæðamannafélagið Ríma - rekstrarstyrkur.
Bæjarráð hafnar styrkumsókn félagsins.

8. Karlakór Siglufjarðar - leigusamningur.
Leigusamningur vegna Lækjargötu 16, rennur út 2016 og felur bæjarráð bæjarstjóra að taka upp viðræður við karlakórinn eins og kveðið er á um í samningi.

9. Viðhaldsliðir í fjárhagsáætlun 2017.
Lagt fram til upplýsingar yfirlit yfir upphæðir á viðhaldsliðum fyrir húsnæði.

10. Breytingartillaga við fjárhagsáætlun 2017.
Bæjarráð samþykkir breytingartillögu við fjárhagsáætlun 2017 og vísar svo breyttri fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn 18. nóvember 2016.

4.Launakjör bæjarstjóra

Málsnúmer 1611036Vakta málsnúmer

Samkvæmt ráðningarsamningi Fjallabyggðar við bæjarstjóra, Gunnar I. Birgisson, skulu laun hans taka mið af þingfararkaupi.

Kjararáð ákvarðaði 29. október 216, hækkun á þingfararkaupi.

Bæjarstjóri afþakkar með formlegum hætti hækkun launa sem byggir á ákvörðun kjararáðs frá 29. október 2016.

Bæjarráð samþykkir að verða við þeirri beiðni.

5.Málefni Vegagerðarinnar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1603021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá fundi Fjallabyggðar með Vegagerðinni 8. nóvember 2016.

Á fundinum var m.a. rætt um aðkomu Vegagerðarinnar að endurnýjun malbiks á þjóðveginum í gegnum Ólafsfjörð og Siglufjörð,
hraðamælingu með ljósaskiltum, veg að skíðasvæði í Skarðdal,
skipulagsvinnu vegna gatnamóta í miðbæ Siglufjarðar, vindmæli á Saurbæjarás og lausn á snjósöfnun þar.

6.Erindi, tillögur og/eða ábendingar v. fjárhagsáætlun 2017

Málsnúmer 1610023Vakta málsnúmer

Teknar til umfjöllunar ábendingar vegna fjárhagsáætlunar 2017 frá Þorvaldi Hreinssyni.

1. Ábending um uppsetningu sveitarfélagsmerkis við bæjarmörk Fjallabyggðar.
Bæjarráð tekur jákvætt í ábendingu um uppsetningu á sveitarfélagsmerki við bæjarmörk Dalvíkurbyggðar.
2. Ábending um vísun á upplýsingaskilti við snjóflóðagarð við Hornbrekku í Ólafsfirði.
Bæjarráð telur ekki þörf á að setja upp ábendingarmerki fyrir upplýsingarskilti við snjóflóðagarð við Hornbrekku.
3. Ábending um minni nagladekkjanotkun á bifreiðum bæjarfélagsins.
Bæjarráð telur ekki rétt að minnka notkun nagladekkja á bílum í eigu bæjarfélagsins.

7.Fasteignamat 2017

Málsnúmer 1606042Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar Þjóðskrár Íslands, dagsettar 26. október 2016, um skýrslu fasteignamats 2017 sem komin er á vef Þjóðskrár Íslands.

http://www.skra.is/um-okkur/utgafur-og-skjol/

8.Haustfundur AFE 22. nóvember 2016

Málsnúmer 1611032Vakta málsnúmer

Boðað er til haustfundar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) sem haldinn verður 22. nóvember nk. á Akureyri.
Samkvæmt 9. gr. samþykkta AFE skulu sveitarfélög kjósa til setu á haustfundum. Á haustfund tilnefnir Akureyrarbær sex fulltrúa, Dalvíkurbyggð þrjá fulltrúa, Fjallabyggð þrjá fulltrúa, Eyjafjarðasveit tvo fulltrúa, Hörgársveit, Grýtubakkahreppur og Svalbarðsstrandahreppur einn fulltrúa hvert.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna til fundarins, Steinunni Maríu Sveinsdóttur, Kristinn Kristjánsson og Gunnar I. Birgisson.

9.Fjarskiptamál

Málsnúmer 1611033Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá fyrirtækjasviði Vodafone, dagsett 9. nóvember 2016, þar sem sýndur er áhugi á að kynna fjarskiptaþjónustur.

10.Krafa frá kennurum til sveitarfélaga

Málsnúmer 1611034Vakta málsnúmer

Lagður fram undirskriftarlisti ásamt kröfu frá grunnskólakennurum á Íslandi, þar sem þess er m.a. krafist að sveitarfélögin á landinu bregðist án tafar við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í skólakerfinu vegna hættulegra og rangra áherslna í kjarastefnu sveitarfélaga gagnvart grunnskólakennurum.

11.Bílastæði við Skálarhlíð

Málsnúmer 1611035Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá fundi stjórnar félags eldri borgara, 2. nóvember 2016, hvort gerlegt sé að fjölga bílastæðum við Skálarhlíð á Siglufirði.

Bæjarráð óskar eftir umsögn frá deildarstjóra tæknideildar.

12.Fundur með erlendum ráðgjöfum um flugmál

Málsnúmer 1611039Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð til bæjarfélagsins í tengslum við starf flugklasans AIR 66N.
Flugklasinn mun halda fund þann 22. nóvember n.k. á Akureyri, þar sem erlendir ráðgjafar munu segja frá ferlinu við að ná flugi inn á nýja áfangastaði, hvað þarf til og hverjar eru helstu áskoranirnar í því starfi.

Bæjarráð samþykkir að formaður bæjarráðs, Steinunn María Sveinsdóttir sæki fundinn.

13.Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016

Málsnúmer 1609038Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 23. september 2016.

14.Fundargerðir stjórnar Eyþings - 2016

Málsnúmer 1601005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð Eyþings frá 287. fundi, 26. október 2016.

15.Fundargerðir Tónlistarskólans á Tröllaskaga

Málsnúmer 1611031Vakta málsnúmer

Lagðar fram eftirfarandi fundargerðir Tónlistarskólans á Tröllaskaga:

1. fundur Skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga,
haldinn í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, 7. október 2016

2. fundur Skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga,
haldinn í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, 4. nóvember 2016

Samþykkt var á fundi skólanefndar 4. nóvember 2016, að vísa
eftirfarandi málum til samþykkta í sveitar- og bæjarstjórnum:
Erindisbréf skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga.
Fjárhagsáætlun TÁT-2017.

Jafnframt var starfslýsingum deildarstjóra og aðstoðarskólastjóra TÁT vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjar- og byggðaráðum sveitarfélaganna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á fundi með byggðarráði Dalvíkurbyggðar.

16.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirfarandi fundargerðir:
Yfirkjörstjórn frá 25. október 2016
Yfirkjörstjórn frá 28. október 2016
Hafnarstjórn frá 7. nóvember 2016
Fræðslu- og frístundanefnd frá 7. nóvember 2016
Félagsmálanefnd frá 1. nóvember 2016
Markaðs- og menningarnefnd frá 9. nóvember 2016

Fundi slitið - kl. 09:55.