Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016

Málsnúmer 1609038

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 465. fundur - 16.09.2016

Boðað er til aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga þann 23. september 2016 kl. 13:00 í Reykjavík. Með fundarboði fylgir dagskrá, drög að skýrslu stjórnar, ársreikningar sambandsins, tillaga að fjárhagsáætlun. Engar tillögur eru að lagabreytingum.

Bæjarráð samþykkir að fulltrúi Fjallabyggðar verði formaður bæjarráðs, Steinunn M. Sveinsdóttir.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 475. fundur - 15.11.2016

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 23. september 2016.