1.Erindi Jóhanns Jóhannssonar vegna uppsagna hjá Ramma hf og Fiskmarkaði Siglufjarðar ehf.
3.Fjárhagsupplýsingakerfi bæjarfélagsins
4.Ræsting í Leikskólum Fjallabyggðar
5.Sala á bifreiðum Slökkviliðs Fjallabyggðar
6.Nýr rammasamningur um þjónustu hjúkrunarheimila
7.Ljósleiðarauppbygging sveitarfélaga - nýjar verklagsreglur
8.Umsókn um ytra mat leikskóla
10.Haustfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
11.Reglur sveitarfélaga um húsnæðismál og staðan í vinnu við leiðbeiningar velferðarráðuneytisins
12.Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga - 2016
Fundi slitið - kl. 09:00.
Á 469. fundi bæjarráðs, 11. október 2016, var lagt fram erindi frá Jóhanni Jóhannssyni, þar sem því er velt fyrir sér hvort ekki sé mikilvægt að boða fund með fyritækjunum Ramma hf og Fiskmarkaði Siglufjarðar ehf vegna uppsagna hjá þessum fyrirtækjum.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að veita umsögn um málið.
Umsögn bæjarstjóra lögð fram.
Þar kemur m.a. fram að starfsfólki Fiskmarkaðs Siglufjarðar hefur fjölgað um tvo frá síðasta ári vegna aukinna umsvifa að sögn forráðamanna fyrirtækisins.
Með tilkomu nýs frystitogara Ramma hf., Sólbergs ÓF-1, mun fyrirtækið leggja tveimur eldri frystitogurum, Sigurbjörgu og Mánabergi.
Nýji togarinn er útbúinn nýjustu tækni í veiðum og vinnslu, sem mun kalla á minna vinnuafl um borð.
Fyrirtækið reiknar með fækkun á þriðja tug starfsmanna með tilkomu nýja skipsins.
Áætlað að flestir um borð í nýja skipinu verði búsettir í Fjallabyggð.