Fjárhagsupplýsingakerfi bæjarfélagsins

Málsnúmer 1610091

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 472. fundur - 01.11.2016

Deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála upplýsti bæjarráð um óleystan ágreining við Wise lausnir ehf. í kjölfar uppfærslu á fjárhagsupplýsingakerfi bæjarins.

Bæjarráð samþykkir að fela lögmanni að leggja mat á næstu skref í málinu.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 477. fundur - 29.11.2016

Á 472. fundi bæjarráðs, 1. nóvember 2016, upplýsti deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála bæjarráð um óleystan ágreining við Wise lausnir ehf. í kjölfar uppfærslu á fjárhagsupplýsingakerfi bæjarins.
Bæjarráð samþykkti að fela lögmanni að leggja mat á næstu skref í málinu.

Umsögn lögmanns lögð fram.

Bæjarráð samþykkir að fela lögmanni að leggja fram sáttartillögu í málinu er byggir á fyrirliggjandi umsögn.