Sala á bifreiðum Slökkviliðs Fjallabyggðar

Málsnúmer 1610082

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 472. fundur - 01.11.2016

Tilboð voru opnuð í tvær bifreiðar Slökkviliðs Fjallabyggðar, 28. október 2016.

Fjögur tilboð bárust í GMC tækjabíl, árgerð 1983 og þrjú í Benz Unimog slökkvibíl árgerð 1965.

Bæjarráð samþykkir að selja bifreiðirnar hæstbjóðanda og að greiðsla þurfi að vera innt af hendi við undirskrift, eigi síðar en 4. nóvember 2016.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 473. fundur - 08.11.2016

Á 472. fundi bæjarráðs, 1. nóvember 2016, voru til umfjöllunar tilboð í tvær bifreiðar Slökkviliðs Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkti að selja bifreiðirnar hæstbjóðanda og að greiðsla þurfi að vera innt af hendi við undirskrift, eigi síðar en 4. nóvember 2016.

Deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála upplýsti bæjarráð um að greiðsla hefði ekki borist frá hæstbjóðanda í Benz Unimog.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að auglýsa þá bifreið aftur til sölu.