Bæjarráð Fjallabyggðar

378. fundur 03. febrúar 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Húsnæði Hornbrekku - aðstaða

Málsnúmer 1501011Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti forstöðumaður Hornbrekku, Rúnar Guðlaugsson og ræddi húsnæðisaðstöðu hjúkrunar- og dvalarheimilisins.

Einnig mætti deildarstjóri fjölskyldudeildar, Hjörtur Hjartarson á fund bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fjölskyldudeildar og deildarstjóra tæknideildar að láta gera úttekt og fá tillögur vegna endurbóta á hjúkrunar- og dvalarrýmum á Hornbrekku.

2.Golfklúbbar í Fjallabyggð, rekstur og framtíðarplön.

Málsnúmer 1501062Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti formaður Golfklúbbs Siglufjarðar, Ingvar Hreinsson og ræddi rekstur og framtíðarplön golfklúbbsins.

Bæjarráð óskar eftir greinargerð um framtíðaráætlanir golfklúbbanna í Fjallabyggð.

3.Hindrun til að verja hús við Eyrarflöt 1,3 og 5 - Siglufirði

Málsnúmer 1409062Vakta málsnúmer

Á 176.fundi skipulags- og umhverfisnefndar var ákveðið að notast við hlaðið grjót í vírneti til að verja hús við Eyrarflöt sem liggja við Langeyrarveg. Áætlaður kostnaður er um 2 milljónir.
Nefndin vísaði því til bæjarráðs hvort farið yrði í þessa framkvæmd strax í vor.

Á fund bæjarráðs mætti deildarstjóri tæknideildar og fór yfir málið.

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að ræða við fulltrúa Vegagerðar um kostnaðarþátttöku í verkefninu.

4.Ósk um námsleyfi

Málsnúmer 1501045Vakta málsnúmer

Á fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 27. janúar s.l. samþykkti nefndin fyrir sitt leyti erindi frá skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar, Ríkey Sigurbjörnsdóttur, um launalaust leyfi frá störfum næsta skólaár, 2015-2016, til þess að sinna endurmenntun.

Bæjarráð samþykkir erindi Ríkeyjar Sigurbjörnsdóttur um launalaust leyfi frá störfum næsta skólaár.

5.Rekstur upplýsingamiðstöðva sumarið 2014

Málsnúmer 1409106Vakta málsnúmer

Upplýst var um fund sem haldinn var 12. janúar s.l. með fulltrúa Bolla og bedda ehf varðandi upplýsingamiðstöð í Ólafsfirði.

Á þeim fundi voru rædd málefni upplýsingamiðstöðvar í Ólafsfirði í tengslum við ályktun markaðs- og menningarnefndar 23. október 2014 og ákvörðun bæjarráðs frá 12. nóvember 2014 um að bjóða aðilum málsins að funda með bæjarstjóra og deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála.

Bæjarráð felur markaðs- og menningarnefnd að taka málið til umfjöllunar.

6.Fasteignagjöld 2015

Málsnúmer 1502001Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur minnisblað deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála í sex liðum um fasteignagjöld 2015, álagningu þeirra, álagningarprósentur, afsláttarreglur og vanskilainnheimtu.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015 samþykkti bæjarstjórn eftirfarandi álagningarprósentur og gjöld:
Fasteignaskattur skv. a.lið 0,49%
Fasteignaskattur skv. b.lið 1,32%
Fasteignaskattur skv. c.lið 1,65%
Lóðaleiga 1,90%
Lóðaleiga fyrirtækja 3,50%
Vatnsskattur 0,35%
Holræsagjald 0,36%
Sorphirðugjald 33.350 kr. (var 32.700)
Hálft sorphirðugjald hefur verið lagt á eigendur sumarhúsa á skipulögðum frístundasvæðum.

Bæjarráð samþykkir að tekjuviðmið í afsláttarrelgum fyrir tekjulága elli- og örorkulífeyrisþega sem eiga lögheimili í Fjallabyggð hækki milli ára um 2%.
Einnig að afsláttarþrep verði fjögur í stað ellefu.
100%, 75%, 50% og 25% af fasteignaskatti.
Hámarksafsláttur verður 56.000.

Viðmið verða þá fyrir eintaklinga:
100% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 1.761.000
75% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 2.123.000
50% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 2.474.000
25% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 2.816.000

Viðmið verða þá fyrir hjón/sambýlisfólk
100% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 2.641.000
75% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 3.169.000
50% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 3.697.000
25% afsláttur af fasteignaskatti tekjuviðmið 4.225.000

7.Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa

Málsnúmer 1501102Vakta málsnúmer

Upplýsingabæklingur Siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagður fram til kynningar.

Siðareglur Fjallabyggðar verða til umfjöllunar á næsta bæjarstjórnarfundi.

8.Sorphirða í Fjallabyggð 2015 athugasemdir

Málsnúmer 1501013Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti deildarstjóri tæknideildar, Ármann Viðar Sigurðsson.

Farið var yfir þau atriði sem betur mega fara í sorphirðumálum bæjarfélagsins.
Kynnt frávik frá sorphirðudagatali í desember og byrjun janúar og athugasemdir sem hafa borist frá íbúum.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að ræða við Íslenska gámafélagið og leita leiða að betri skilvirkni í sorphirðu í bæjarfélaginu.
Íbúar verði upplýstir um frávik frá sorphirðudagatali.

9.Innkaupareglur Fjallabyggðar - yfirferð og endurskoðun

Málsnúmer 1501103Vakta málsnúmer

Farið var yfir innkaupareglur bæjarfélagsins og leggur bæjarráð áherslu á að farið sé eftir þeim við öll innkaup.

Bæjarráð óskar eftir yfirliti yfir helstu útboðssamninga sem eru í gildi.

10.Framlög vegna nýbúafræðslu 2015

Málsnúmer 1409012Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fjölskyldudeildar Hirti Hjartarsyni.

Deildarstjóri fjölskyldudeildar hefur haft samband við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) varðandi íslenskukennslu fyrir fullorðna nýbúa í Fjallabyggð.

Deildarstjóri mun funda með forsvarsmönnum Símeyjar um íslenskunámskeið og fyrirkomulag nýbúafræðslu sem taki sérstaklega mið af þörfum nýbúa í Fjallabyggð.

Bæjarráð óskar að niðurstaða liggi fyrir á næsta fundi.

11.Samstarf í úrgangsmálum á Norðurlandi

Málsnúmer 1502013Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að fela Ríkharði Hólm Sigurðssyni og Ármanni Viðari Sigurðssyni að fara sem fulltrúar bæjarfélagsins á fund um samstarf í úrgangsmálum á Norðurlandi, 4. febrúar á Akureyri.

12.Til umsagnar - Frumvarp til laga um grunnskóla, 426. mál

Málsnúmer 1501099Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

13.Til umsagnar - Frumvarp til laga um Menntamálastofnun, 456.mál

Málsnúmer 1501094Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

14.Til umsagnar - Frumvarp til laga um örnefni

Málsnúmer 1404026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

15.Lóðir undir eldsneytisafgreiðslu, Vesturtangi 18 og 20

Málsnúmer 1403067Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar lögfræðiálit um réttarstöðu olíufélaganna Skeljungs, N1 og Olís vegna umsóknar og úthlutunar lóðar fyrir eldsneytisafgreiðslu.

Bæjarráð felur tæknideild að leggja fram tillögu um mögulegar lóðir undir sjálfsafgreiðslustöðvar, eina á Siglufirði og aðra í Ólafsfirði.

Fundi slitið.