Bæjarráð Fjallabyggðar

375. fundur 20. janúar 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Kvikmyndasýningar í Tjarnarborg

Málsnúmer 1410049Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti Skúli Pálsson til að fylgja eftir áskorun sem hann sendi bæjarstjórn um kaup á búnaði til kvikmyndasýninga í Tjarnarborg.

Bæjarráð þakkar Skúla fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til markaðs- og menningarnefndar.

Jafnframt samþykkir bæjarráð að fela markaðs- og menningarnefnd að endurskoða og móta framtíðarstefnu fyrir menningarhúsið Tjarnarborg, varðandi tilgang og nýtingu.
Niðurstöðu þarf að leggja fyrir bæjarráð fyrir 1. apríl 2015.

2.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015

Málsnúmer 1409031Vakta málsnúmer

S. Guðrún Hauksdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

Í bréfi fiskverkenda í Ólafsfirði, dagsett 6. janúar 2015, er byggðakvótaúthlutun og fyrirkomulagi mótmælt.
Óska þeir eftir að úthlutun verði afturkölluð og endurskoðuð.

Bæjarráð hafnar að endurskoða úthlutunarreglur.

Bæjarráð samþykkir að fela atvinnumálanefnd að kanna hvernig eftirlitshlutverki er sinnt er varðar byggðakvóta.

3.Aukning hlutafjár í Greiðri leið ehf

Málsnúmer 1412023Vakta málsnúmer

Í bréfi Greiðrar leiðar ehf til hluthafa, dagsett 13. janúar 2015, er óskað eftir áskrift að því hlutafé sem var óselt um áramót, þannig að staðið verði við lánasamning Vaðlaheiðarganga og ríkisins án þess að reyna þurfi á ábyrgð Akureyrarbæjar.

Forkaupsréttur Fjallabyggðar í óseldum hlutum er kr. 11.525.

Bæjarráð samþykkir hlutafjáraukninguna samhljóða.

4.Ályktun aðalfundar Golfklúbbs Ólafsfjarðar

Málsnúmer 1501047Vakta málsnúmer

Í ályktun aðalfundar Golfklúbbs Ólafsfjarðar frá 29. desember 2014, er m.a. hörmuð sú ákvörðun bæjarstjórnar Fjallabyggðar að setja einungis 1600 þúsund til rekstrar Skeggjabrekkuvallar í Ólafsfirði á árinu 2015 og þess óskað að bæjarstjórnin endurskoði ákvörðun sína.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir að formenn golfklúbba í Fjallabyggð komi á fund bæjarráðs til viðræðna um rekstur og framtíðarplön.

5.Húsnæði Hornbrekku - aðstaða

Málsnúmer 1501011Vakta málsnúmer

Í bréfi forstöðumanns Hornbrekku dagsett 2. janúar 2015, er óskað eftir viðræðum við Fjallabyggð um húnæðismál Hornbrekku.

Bæjarráð samþykkir að boða forstöðumann á fund bæjarráðs.

6.Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2015

Málsnúmer 1412048Vakta málsnúmer

Í bréfi Stígamóta frá 10. desember 2014, er leitað eftir rekstraraðstoð.

Bæjarráð hafnar erindinu.

7.Kauptilboð - Kirkjuvegur 4 Ólafsfirði

Málsnúmer 1501051Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu þessa liðar.

8.Starfslok bæjarstjóra

Málsnúmer 1501038Vakta málsnúmer

Dagskrárlið frestað til bæjarráðsfundar n.k. fimmtudag.

9.Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 1501039Vakta málsnúmer

Dagskrárlið frestað til bæjarráðsfundar n.k. fimmtudag.

10.Rekstraryfirlit nóvember 2014

Málsnúmer 1412053Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir fyrstu 11 mánuði ársins 2014, dagsett 6. janúar 2015.

Rekstrarniðurstaða tímabils er 39,5 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, -92,8 millj. miðað við -53,3 millj.
Tekjur eru 6,1 millj. lægri en áætlun, gjöld 38,3 millj. lægri og fjárm.liðir 7,3 millj. lægri.

11.Álit Siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga í máli nr. 2/2014

Málsnúmer 1501042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

12.Málefni Leyningsáss ses.

Málsnúmer 1206038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf sent samgönguráði dagsett 9. janúar 2015 vegna vegar að skíðasvæðinu í Skarðsdal.

13.Siglufjörður, landnýtingartillögur, tangi og miðbær

Málsnúmer 1403070Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 16. janúar lögð fram til kynningar.

14.Fundargerðir stjórnar Hornbrekku 2014

Málsnúmer 1401021Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 9. desember 2014, lögð fram til kynningar.

15.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2015

Málsnúmer 1501021Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 5. janúar 2015 lögð fram til kynningar.

16.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2014

Málsnúmer 1401023Vakta málsnúmer

Fundargerðir 261. og 262. fundar, frá 19. nóvember og 17. desember s.l. lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið.