Bæjarráð Fjallabyggðar

679. fundur 12. janúar 2021 kl. 08:15 - 09:35 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Staðgreiðsla tímabils - 2020

Málsnúmer 2001113Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit staðgreiðslu fyrir tímabilið janúar til desember 2020. Staðgreiðsla fyrir tímabilið nemur kr. 1.224.159.113.- eða 103,74% af tímabilsáætlun.

2.Launayfirlit tímabils - 2020

Málsnúmer 2002025Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit launa fyrir tímabilið janúar til desember 2020.

3.Stytting vinnuvikunnar

Málsnúmer 2101016Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt yfir niðurstöður vinnutímafyrirkomulags stofnana Fjallabyggðar vegna styttingar vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki. Um er að ræða tillögur vegna 16 vinnustaða.

Helga Helgadóttir vék af fundi.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur stofnana/vinnustaða að fyrirkomulagi vinnutímaskipulags vegna styttingar vinnuvikunnar með einni undantekningu og er bæjarstjóra falið að útfæra vinnuskipulag í Ráðhúsi þannig að ekki komi til þjónustuskerðingar.

4.Breytingar á vigtarhúsi, verðkönnun

Málsnúmer 2101024Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 08.01.2021 þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til þess að halda lokaða verðkönnun vegna breytinga á vigtarhúsi Fjallabyggðarhafna, Siglufirði.

Eftirtöldum aðilum yrði gefinn kostur á að bjóða í verkið; Berg ehf., L7 ehf., GJ smiðir ehf. og Trésmíði ehf..

Bæjarráð samþykkir að heimila lokaða verðkönnun vegna verksins og felur deildarstjóra tæknideildar að vinna málið áfram.

5.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2101031Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs færð í trúnaðarbók.

6.Styrkumsóknir 2021 - Rekstrarstyrkir til safna og setra

Málsnúmer 2009075Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir um styrki til reksturs safna og setra í Fjallabyggð fyrir árið 2021. Alls bárust þrjár umsóknir, samtals að upphæð kr. 4.300.000.

Lögð fram tillaga að úthlutun styrkja til reksturs safna og setra í Fjallabyggð árið 2021, samtals kr. 1.000.000.-

Lagt til að afgreiðsla á umsókn Fjallasala ses. verði frestað með vísan í 9. lið þessarar fundargerðar.

Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að úthlutun styrkja til reksturs safna og setra í Fjallabyggð árið 2021, samtals kr. 1.000.000 til afgreiðslu bæjarstjórnar og felur bæjarstjóra og deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að funda með stjórn Fjallasala ses. vegna frestunar á afgreiðslu umsóknar. Bæjarráð samþykkir einnig að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að gera drög að samningi við Félag um Ljóðasetur Íslands í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar um að bjóða styrkþegum 2020 í flokki rekstrarstyrkja samning við Fjallabyggð um styrkupphæð fyrir árið 2020 út árið 2022.

7.Styrkumsóknir 2021 - Styrkir til hátíðahalda

Málsnúmer 2009078Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir um styrki til hátíðarhalda fyrir árið 2021. Alls bárust fimm umsóknir, samtals að upphæð kr. 5.100.000.

Lögð fram tillaga að úthlutun styrkja til hátíða í Fjallabyggð árið 2021, samtals kr. 3.050.000.

Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að úthlutun styrkja til hátíða í Fjallabyggð árið 2021, samtals kr. 3.050.000 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

8.Styrkumsóknir 2021 - Ýmis mál

Málsnúmer 2009076Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir um styrki til ýmissa mála árið 2021. Alls bárust þrettán umsóknir, upphæð ótilgreind þar sem aðeins hluti umsækjenda tilgreindi upphæð sem sótt var um.

Lögð fram tillaga að úthlutun styrkja til ýmissa mála í Fjallabyggð 2021.

Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að úthlutun styrkja til ýmissa mála í Fjallabyggð 2021 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

9.Rekstrarsamningar vegna eigna sveitarfélagsins

Málsnúmer 2101030Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir samninga við félög og stofnanir um rekstur eigna/íþróttamannvirkja sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála og deildarstjóra tæknideildar að fara yfir samningana og veita umsögn með tilliti til þess að tæknideild visti og sjái um samninga er snúa að umhirðu og þjónustu við eignir sveitarfélagsins og samningar er varða starf félaga/stofnana séu í umsjá viðeigandi deildarstjóra.

10.Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2020

Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 06.01.2021 þar sem fram kemur að Fjallabyggð sótti um styrk til Orkusjóðs vegna orkuskipta. Sótt var um styrk upp á 5 milljónir sem fer til kaupa og uppsetningar á 8 Ac hleðslustöðvum og einni 50 kw. hraðhleðslustöð. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að Fjallabyggð leggi til 50% af kostnaði við verkefnið. Orkusjóður hefur samþykkt styrk til Fjallabyggðar upp á 5 milljónir og er því óskað eftir viðauka upp á 5 milljónir svo hægt sé að framkvæma verkið.

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að gera tillögu að staðsetningu stöðva sem og að vinna kostnaðaráætlun fyrir hvern stað og leggja fyrir bæjarráð.

11.Grænbók um byggðamál í samráðsgátt

Málsnúmer 2101014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), dags. 05.01.2020 þar sem athygli er vakin á að Grænbók um byggðamál hefur verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda. Grænbókinni er ætlað að meta stöðu byggðamála og vera grundvöllur fyrir nýrri stefnumótun í byggðamálum til fimmtán ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Hafist verður handa við gerð hvítbókar (þingsályktunartillögu) strax eftir hátíðir og stefnt að því að taka annan samráðsfundahring með landshlutunum áður en sú vinna klárast.

12.Drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (Covid-19 og sveitarfélög)

Málsnúmer 2101017Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum vegna áhrifa Covid-19 á sveitarfélög sem aðgengileg eru í samráðsgátt Stjórnarráðsins.

13.Áskorun til sveitarstjórnar des. 2020 - Rekstur skíðasvæða

Málsnúmer 2012042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Markaðsstofu Norðurlands, dags. 18.12.2020 er varðar áskorun á sveitarfélög að styðja vel við rekstur skíðasvæða.

14.Áskorun varðandi framboð grænkerafæðis í skólum

Málsnúmer 2101011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samtaka grænkera á Íslandi, dags 29.12.2020 þar sem skorað er á sveitarfélög að setja skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.

15.Aukaþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar Norðurlandi eystra(SSNE) des.2020

Málsnúmer 2101013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aukaþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) frá 11. desember sl.

16.Verklag og leiðbeiningar til framkvæmdaraðila vegna ferðatakmarkana og sóttvarnaráðstafna

Málsnúmer 2006016Vakta málsnúmer

Ferðatakmarkanir breskra ríkisborgara
Lagt fram til kynningar erindi Ríkislögreglustjóra, dags. 21.12.2020 er varðar tilkynningu til flutningsaðila um ferðatakmarkanir frá Bretlandi vegna Covid-19 sem munu að óbreyttu taka gildi 1. janúar 2021.

17.Fréttabréf Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2020

Málsnúmer 2005025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 10. fréttabréf Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) frá desember sl..

18.Frá nefndasviði Alþingis - mál til umsagnar

Málsnúmer 2005035Vakta málsnúmer

Lögð fram til umsagnar frá nefndasviði Alþingis, tillaga til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu, mál 360.

19.Frá nefndasviði Alþingis - Mál til umsagnar 2021

Málsnúmer 2101022Vakta málsnúmer

Lagt fram til umsagnar frá nefndasviði Alþingis, frumvarp til laga um kosningalög 339. mál.

20.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar Skólanefndar Fjallabyggðar frá 4. nóvember sl.

21.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2021

Málsnúmer 2101002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir
94. fundar Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar frá 4. janúar sl..
263. fundur Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 6. janúar sl..
72. fundur Markaðs- og menningarnefndar Fjallbyggðar frá 7. janúar sl..

Fundi slitið - kl. 09:35.