Áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP) 2025

Málsnúmer 2503013

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 918. fundur - 07.05.2026

Fyrir liggur erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu í samráði við skipulags- og umhverfisnefnd.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 333. fundur - 12.05.2026

Fyrir liggur erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að stikun Botnaleiðar og fuglaskoðunarhús verði tekin út úr áfangastaðaáætlun þar sem þessi verkefni eru þegar í þeim farvegi að þeim verði lokið. Þess í stað verði horft til nýrra verkefna og þau undirbúin í ár með það fyrir augum að hægt verði að sækjum um styrk fyrir verkefnunum í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða haustið 2026.
Nefndin telur að horfa megi til stefnu um komu skemmtiferðaskipa og þá aðstöðusköpun fyrir framan Síldarminjasafn sem þar er lögð til sem nýtt verkefni. Í bígerð er nýtt deiliskipulag á Leirutanga þar sem frekari uppbygging í griðlandi fugla, stígagerð og önnur aðstöðusköpun við nýtt fuglaskoðunarhús, mun verða fest í sessi. Þetta afmarkaða verkefni mætti móta í samráði við Fuglavinafélag Siglufjarðar. Þá telur nefndin áfram brýnt að aflað verði nauðsynlegra leyfa eða réttinda til að leggja stíg út að rústum Evanger og áfram út að Selvíkurvita í samræmi við núverandi áfangastaðaáætlun og fyrri úthlutun úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Einnig leggur nefndin til að skoðað verði sérstaklega hvort geri megi hjöllum í Ólafsfirði sérstök skil í gegnum verkefni sem yrði formfest í gegnum áfangastaðaáætlun. Að lokum leggur nefndin til að leitað verði til ferðaklasans í Fjallabyggð um samvinnu um áfangastaðaáætlunina.
Tæknideild er falið að vinna málið áfram.