Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 918. fundur - 07.05.2026

Í ljósi aukins svigrúms til framkvæmda vegna niðurstöðu ársreiknings 2025 liggur fyrir tillaga að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026 upp á 57,5 milljónir króna. Lögð er áhersla á framkvæmdir við hafnarsvæðin, gangstéttir og leiksvæði í fyrirliggjandi tillögu.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárfestingaáætlun 2026 að upphæð kr. 57.500.000 þar sem lögð er áhersla á hafnarsvæðin, gangstéttir og leiksvæði. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.

Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að leggja fram frekari greiningu á kostnaði og umfangi framkvæmda við hafnarsvæðið í Ólafsfirði á svæðinu fyrir neðan Kjörbúðina og leggja fyrir áætlun og kostnaðarmat.  

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 271. fundur - 21.05.2026

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026 upp á 57,5 milljónir króna sem samþykkt var í bæjarráði þann 7.maí s.l. og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026.