Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi gistingar - Aðalgata 15

Málsnúmer 2604062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 918. fundur - 07.05.2026

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn Welcome Iceland ehf. um gistileyfi vegna rekstur gististaðar að Aðalgötu 15, Ólafsfirði.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 333. fundur - 12.05.2026

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn Welcome Iceland ehf. um gistileyfi vegna reksturs gististaðar að Aðalgötu 15, Ólafsfirði.
Synjað
Starfsemin fellur undir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í flokki II samkvæmt lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Samkvæmt lögum skal rekstrarleyfisskyld gististarfsemi innan þéttbýlis vera rekin í samþykktu atvinnuhúsnæði. Fyrirhuguð starfsemi samræmist því ekki aðalskipulagi sveitarfélagsins, þar sem Aðalgata 15 er staðsett á skilgreindu íbúðarsvæði.
Nefndin leggur því til að umsókn um rekstur gististarfsemi að Aðalgötu 15 verði hafnað.