Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 911. fundur - 05.03.2026

Fram hafa komið hugmyndir nú um framtíðaruppbyggingu á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leita frekari upplýsinga.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 914. fundur - 30.03.2026

Í kjölfar auglýsingar um hugmyndir varðandi nýtingu fasteigna í eigu Fjallabyggðar á flugvallarsvæðinu á Siglufirði liggja fyrir þrjár grófar hugmyndir að framtíðarnýtingu.
Viking Heliskiing lýsir áhuga á að kaupa eignir Fjallabyggðar og gera svæðið að lykilinnviði í áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu á Tröllaskaga og í Fjallabyggð með starfsemi fyrirtækisins á sviði þyrluþjónustu í huga.
Georg Páll Kristinsson lýsir yfir áhuga á nýtingu svæðisins og fasteigna í rekstur með vistvænum brennsluofni.
Þriðja hugmyndin er almenn og snýr að nýtingu svæðisins og fasteigna fyrir ýmis konar samkomur, tónleikahald, listsýningar og fleira.

Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Viking Heliskiing um mögulega framtíðaruppbyggingu á flugvallarsvæðinu á Siglufirði og kaup á eignum Fjallabyggðar á svæðinu enda samræmast hugmyndir fyrirtækisins tillögum starfshóps um framtíðaruppbyggingu flugvallarsvæðisins frá árinu 2022.