Bæjarráð Fjallabyggðar
179. fundur 10. ágúst 2010 kl. 17:00 - 19:00 sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði
Nefndarmenn
• Ólafur Helgi Marteinsson formaður
• Ingvar Erlingsson varaformaður
• Bjarkey Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
• Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
• Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
• Helga Helgadóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
1.Lagning háspennukapla um Norðurgötu á Siglufirði
Málsnúmer 1007070Vakta málsnúmer
Verkfræðistofa Siglufjarðar óskar eftir samþykki Fjallabyggðar á breytingu á framkvæmdarleyfi fyrir hönd Rarik í samræmi við framkomnar óskir íbúa við Eyrargötu og Aðalgötu.
Skrifstofu- og fjármálastjóri að höfðu samráði við bæjarstjóra hefur samþykkt umbeðna breytingu f.h. bæjarfélagsins með fyrirvara um staðfestingu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir og samþykkir umbeðna breytingu á framkvæmdarleyfi Rarik.
2.Snorragata, Siglufirði
Málsnúmer 1008012Vakta málsnúmer
Fulltrúi Vegagerðar, Guðmundur Heiðreksson, hefur óskað eftir fundi með forsvarsmönnum sveitarfélagsins vegna framkvæmda við Snorragötu.
Bæjarstjóri hefur ákveðið að fundurinn fari fram fimmtudaginn 19. ágúst kl. 14.00. Á fundinn mæta tveir fulltrúar Vegagerðar, hönnuður bæjarfélagsins Halldór Jóhannsson, bæjarstjóri, skipulags- og byggingarfulltrúa bæjarfélagsins og tveir hagsmunaaðilar boðaðir sérstaklega af bæjarstjóra. Þeir eru Finnur Ingvi Kristinsson frá Rauðku ehf og Örlygur Kristinsson frá Síldarminjasafninu.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð óskar eftir frumtillögum til skoðunar fyrir þriðjudaginn 24.08.2010 ásamt grófri kostnaðaráætlun þar sem fram kemur hlutur bæjarfélagsins í framkvæmdinni.
Bæjarráð telur brýnt að verkáfanginn miðist við framkvæmdir frá Norðurtúni að Gránugötu.
3.Söluheimild - Steyr, dráttarvél VR-716 og sturtuvagn
Málsnúmer 1008006Vakta málsnúmer
Borist hefur fyrirspurn um kaup á dráttarvél og sturtuvagn í eigu bæjarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa tækin til sölu á heimasíðu bæjarfélagsins og í verslunum og/eða staðarblöðum.
4.Leikskólar - tölvubúnaður
Málsnúmer 1008007Vakta málsnúmer
Leikskólastjóri óskar eftir fjárheimild til kaupa á tölvubúnaði
Bæjarráð telur rétt að verða við framkominni tillögu leikskólastjóra um kaup á fartölvu og borðtölvu fyrir leikskóla bæjarfélagsins til að tryggja eðlileg samskipti í rekstri Leikskála og Leikhóla.
Áætlaður kostnaður er kr. 350.000.-.
Gera skal ráð fyrir þessari breytingu í fjárfestingaliðum bæjarfélagsins við endurskoðun á áætlun ársins í september.
Samþykkt samhljóða.
5.Rennibraut við sundlaugina í Ólafsfirði
Málsnúmer 1007079Vakta málsnúmer
Tekin var fyrir bókun í Frístundanefnd Fjallabyggðar um tvö kauptilboð í rennubrautir fyrir íþróttamiðstöðina í Ólafsfirði.
Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að staðfesta ákvörðun nefndarinnar um kaup frá fyrirtækinu Spennandi ehf.
Kaupverð með uppsetningu er kr. 18.427.795.-  Helga Helgadóttir sat hjá.
6.Tækjakaup vegna þjónustu við Héðinsfjarðargöng
Málsnúmer 1008019Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Vegagerð ríkisins dags. 4. ágúst 2010.
Vegagerðin mun styrkja Fjallabyggð um 14 milljónir til tækjakaupa vegna þjónustu við Héðinsfjarðargöng og lítur svo á að þar með sé slökkviliðið í stakk búið til að sinna skildum sínum samkvæmt reglugerð um brunavarnir í samgöngumannvirkjum.
Bæjarráð telur rétt að kalla eftir upplýsingum frá slökkviliðsstjóra um fyrirhuguð kaup á tveimur tankbílum, tækjum og búnaði til að takast á við nýjar skyldur slökkviliðs Fjallabyggðar.
7.Útboð akstursþjónustu
Málsnúmer 1004050Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð telur rétt að framkomnar athugasemdir vegna útboðs á akstursþjónustu og svör við þeim verði settar á heimasíðu bæjarfélagsins. Allar athugasemdir verða síðan teknar til umfjöllunar eftir að tilboð verða opnuð þann 18. ágúst n.k.
8.Útdeiling fjármagns á vegum UÍF - Skiptaregla
Málsnúmer 0912021Vakta málsnúmer
Frístundanefnd samþykkti á 39. fundi sínum skiptireglur Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (ÚÍF) og samþykkti útreikning á skiptingu styrkja Fjallabyggðar til íþróttafélaga innan UÍF.
Bæjarráð fagnar framkomnum reglum.
9.Ósk um að kaupa trésmíðavél
Málsnúmer 1008022Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar um kaup á sambyggðri trésmíðavél. Þessi vél leysir af hólmi tvær vélar sem vinnueftirlitið hefur gert athugasemdir við og snertir öryggisbúnað vélanna.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að verða við erindi skólastjóra en vísar erindinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2011.
10.Ósk um aukið starfshlutfall skólaliða
Málsnúmer 1008023Vakta málsnúmer
Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar óskar eftir tilfærslu á einu stöðugildi skólaliða í unglingadeild, vegna sameiningu á skólahaldi í bæjarfélaginu. Umrædd ósk kallar ekki á aukið fjármagn þar sem gert var ráð fyrir þessu starfshlutfalli við gerð fjárhagsáætlunar.
Samþykkt samhljóða.
11.Klæðning Aðalgötu 32, Siglufirði
Málsnúmer 1006009Vakta málsnúmer
Borist hefur bréf frá Deloitte dags. 9. ágúst 2010, þar sem þess er óskað að bæjarráð fresti afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslunni og felur bæjarstjóra að vinna að lausn málsins.
12.Vinnuhópur - Opnun Héðinsfjarðarganga
Málsnúmer 1008025Vakta málsnúmer
Lagt er til að skipaður verði vinnuhópur vegna hátíðarhalda við opnun ganga.
Bæjarráð samþykkir skipa neðanritaða í vinnuhóp til að vinna með Vegagerðinni að hátíðarhöldum við opnun Héðinsfjarðargangna.
Gunnar Smári  Helgason
Magnús Guðmundur Ólafsson og
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
13.Launayfirlit janúar-júlí
Málsnúmer 1008008Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar launayfirlit fyrstu sjö mánuði ársins.
14.Staðgreiðsluskil janúar-júlí
Málsnúmer 1008018Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar samanburður á staðgreiðsluskilum fyrstu sjö mánuði áranna 2007, 2008, 2009 og 2010.
Fram kemur að breyting til lækkunar milli 2009 og 2010 er 3,2%.
15.Grunnupplýsingar um kjaradeilu Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Málsnúmer 1008021Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
16.Kosningar í trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum
Málsnúmer 1006050Vakta málsnúmer
Breytingar á nefndarskipan S lista
Í kjölfar þess að Jón Hrói Finnsson hefur tekið við starfi sveitarstjóra Svalbarðsstrandarhrepps og Helga Helgadóttir hafið störf hjá félagsþjónustu Fjallabyggðar samþykkir bæjarráð eftirfarandi breytingar á nefndarskipan S- lista í skipulags- og umhverfisnefnd, fræðslunefnd og félagsmálanefnd Fjallabyggðar:
Jón Konráðsson tekur sæti Jóns Hróa sem varamaður í skipulags- og umhverfisnefnd.
Helga Helgadóttir tekur sæti Jóns Hróa sem aðalmaður í fræðslunefnd.
Þrúður Sigmundsdóttir tekur sæti Helgu Helgadóttur sem varamaður í fræðslunefnd.
Anna Rósa Vigfúsdóttir tekur sæti Helgu Helgadóttur sem aðalmaður í félagsmálanefnd.
17.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94
Málsnúmer 1007007FVakta málsnúmer
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94
Ómar Ívarsson kynnti tillögur að deiliskipulagi á Eyrarflöt á Siglufirði.
Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu 94. fundar
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94 Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar staðfest í bæjarráði 3 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 94
Óskað var eftir að taka fyrir umræðu um klæðningu á húsi við Aðalgötu 32,  Siglufirði, erindi sem nefndin hafði hafnað á fyrri fundi. Fundarmenn samþykktu að taka málið fyrir.  Nefndin samþykkir að halda sig við bókun 93. fundar.
Fundi slitið - kl. 19:00.