Ósk um að kaupa trésmíðavél

Málsnúmer 1008022

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 179. fundur - 10.08.2010

Lagt fram bréf frá skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar um kaup á sambyggðri trésmíðavél. Þessi vél leysir af hólmi tvær vélar sem vinnueftirlitið hefur gert athugasemdir við og snertir öryggisbúnað vélanna.

Bæjarráð telur nauðsynlegt að verða við erindi skólastjóra en vísar erindinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2011.