Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson með tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Fimmtudaginn 15. ágúst kl. 20,00 verða Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson með tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Húsið opnar kl. 19.45 og er tekið við frjálsum framlögum við innganginn.

Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson ferðast nú um landið og fagna 20 ára vináttu og samspilsafmæli með tónleikum.
Á túrnum heiðra þeir einnig minningu João Gilberto, einn upphafsmanna Bossa Nova tónlistar. Gilberto fann upp nýja aðferð við að syngja og spila á kassagítar á fimmta og sjötta áratugnum, sem síðar varð frægt og nýtur virðingar um allan heim.
Prógram Ife og Óskars inniheldur einnig brasilíska tónlist með jazz, rokk, barrokk og rómantískt klassísku ívafi.

Uppbyggingasjóður/Eyþing - Fjallabyggð - Norðurorka - Aðalbakarí og Menningarsjóður Siglufjarðar styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.