Í Skálarhlíð eru 29 íbúðir. 10 stórar íbúðir og 19 litlar. Stærri íbúðirnar eru um 58 fm. minni íbúðirnar eru um 20 fm. og 28 fm. Íbúðunum fylgja geymslur sem eru 6 - 8 fm. Einnig er ein íbúð sem er 43 fm.
Í Skálarhlíð er dagþjónusta aldraðra sem nýtist íbúum vel. Þar er boðið upp á morgunmat, milli kl. 09:00 - 10:00, hádegismat kl. 12:00 og kaffi alla virka daga kl. 14.30.
Íbúar geta fengið heimilshjálp og heimahjúkrun. Dagþjónustan er opin alla virka daga á milli kl. 09:00 - 15:00.
Íbúar geta fengið tengdan neyðarhnapp.
Í húsinu er sameiginlegt þvotthús.
Efnalaugin Lind er með mjög góða þjónustu fyrir þá sem vilja koma og sækja þvott 1x í viku og koma með hreinan þvott 1x í viku.
Einnig er snyrtistofa og hárgreiðslustofa í húsinu.
Dagvist aldraðra
Dagvist aldraðra er til húsa í Skálarhlíð. Það sem er í boði er eftirtalið;
- Fönduraðstaða opin fyrir þá sem vilja nýta sér aðstöðuna klukkan 13:00 alla virka daga.
- Félagsvist á mánudögum klukkan 13:00
- Bridge á miðvikudögum klukkan 13:00
- Bingó á fimmtudögum klukkan 13:30
- Bocciaæfingar klukkan 10:30 á þriðjudögum og föstudögum
- Vatnsleikfimi klukkan 10:00 á mánudögum og miðvikudögum
- Myndasýning klukkan 10:30 á mánudögum
- Bæjarferðir klukkan 13:00 á þriðjudögum og föstudögum
Hér er hægt að nálgast prentútgáfu af dagskrá dagvistunnar 2017-2018.(pdf-skjal)
Markmið með starfinu er að:
- rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku daglegra athafna.
- bjóða upp á þjónustu sem auðveldar fólki að búa sem lengst heima.
- hafa notalegt umhverfi þannig að starfsfólk og gestir geti í sameiningu mótað starfsemina.
- hver dagur verði góður og ánægjulegur
Fjöldi mynda hafa verið teknir af starfinu úr dagvistinni og má sjá þær allar með því að smella hér.
Forstöðumaður Helga Hermannsdóttir
Netfang: dagvist@simnet.is
Sími: 467-1147
Gsm: 898-1147