Ungmennaráð - önnur mál 2026

Málsnúmer 2602016

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 45. fundur - 13.02.2026

Ungmennaráð ræðir ýmis mál sem brenna á ráðinu hverju sinni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Rætt um skólamat og að passað sé uppá að nægjanlegur matur sé alltaf. Einnig rætt að stundum sjá nefndarmenn að mat er hent af nemendum. Hafa keppni milli bekkja um minnstu matarsóunina og einhver verðlaun fyrir t.d. pizzu veislu.
Ræddum um fyrirhugað ungmennaþing á Húsavík í apríl, samstarf ungmennaráða á svæðinu og fleira.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 46. fundur - 18.03.2026

Önnur mál
Samþykkt
Ungmennaráð telur mikilvægt að auka kennslu í fjármálalæsi bæði í grunn- og framhaldsskóla og hvetur til þess að það verði gert.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10.09.2026

Ýmis erindi sem ungmennaráð vill ræða
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Spurt var um hvort það væri ákvörðun Grunnskóla Fjallabyggðar eða hvort lög segðu að nemendur mættu ekki klára sundpróf 10. bekkjar fyrr eins og verið hefur.

Starfsmanni falið að kanna málið.