Gulur september

Málsnúmer 2609017

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10.09.2026

Erindi frá landlækni - Gulur september
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráði kynnt verkefnið Gulur september, samstarfsverkefni fjölmargra aðila sem miðar að því að efla geðrækt, auka þekkingu á sjálfsvígsforvörnum og minna á mikilvægi umhyggju og samveru. Áhersla ársins 2026 er sérstaklega á ungt fólk og að ná til þess í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsstarfi og á samfélagsmiðlum.

Jafnframt var vakin athygli á því að október er forvarnamánuður og Forvarnadagurinn verður haldinn í byrjun mánaðarins. Ungmennaráð er hvatt til að kynna sér verkefnin og möguleika á þátttöku.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10.09.2026

Erindi frá landlækni - Gulur september
Lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd vekur athygli á Gulum september og hvetur fyrirtæki, stofnanir, skóla, íþrótta- og félagasamtök og íbúa Fjallabyggðar til virkrar þátttöku í átakinu.

Sérstök áhersla er lögð á ungt fólk í ár og mikilvægi þess að ná til ungmenna þar sem þau eru, m.a. í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsmiðstöðvum og á samfélagsmiðlum. Nefndin hvetur til þess að ungu fólki verði gefið tækifæri til að taka virkan þátt og skapa eigin verkefni í tengslum við átakið.

Velferðarnefnd hvetur jafnframt til fjölbreyttrar og sýnilegrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með gulum dögum, viðburðum, samveru, tónlist og söng, skreytingum og öðrum skapandi verkefnum. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að gera Gulan september sýnilegan á vinnustöðum og opinberum stöðum og vekja þannig athygli á mikilvægi geðræktar, sjálfsvígsforvarna, umhyggju og þess að vera til staðar hvert fyrir annað.

Nefndin hvetur íbúa til að kynna sér og taka þátt í þeim viðburðum sem haldnir verða í Gulum september.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

Erindi vegna Guls september
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd vekur athygli á Gulum september og hvetur fyrirtæki, stofnanir, skóla, íþrótta- og félagasamtök og íbúa Fjallabyggðar til virkrar þátttöku í átakinu.

Sérstök áhersla er lögð á ungt fólk í ár og mikilvægi þess að ná til ungmenna þar sem þau eru, m.a. í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsmiðstöðvum og á samfélagsmiðlum. Nefndin hvetur til þess að ungu fólki verði gefið tækifæri til að taka virkan þátt og skapa eigin verkefni í tengslum við átakið.

Fræðslu- og frístundanefnd hvetur jafnframt til fjölbreyttrar og sýnilegrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með gulum dögum, viðburðum, samveru, tónlist og söng, skreytingum og öðrum skapandi verkefnum. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að gera Gulan september sýnilegan á vinnustöðum og opinberum stöðum og vekja þannig athygli á mikilvægi geðræktar, sjálfsvígsforvarna, umhyggju og þess að vera til staðar hvert fyrir annað.

Nefndin hvetur íbúa til að kynna sér og taka þátt í þeim viðburðum sem haldnir verða í Gulum september.

Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 36. fundur - 29.09.2026

Áskorun vegna "guls september"
Gulur september er á enda en við tekur bleikur október sem er forvarnarmánuður m.a. tileinkaður fólki sem hefur fengið krabbamein.

En fimmtudagurinn 1. október er forvarnardagur og á heimasíðunni forvarnardagur.is má finna ýmsar upplýsingar. Þann dag verður málþing Forvarnardagsins haldið í 21. skiptið. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Setning dagsins er í beinu streymi.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn hvetja íbúa og fyrirtæki til að taka þátt í forvarnarstarfinu m.a. með því að skarta bleiku í hinum ýmsu myndum. Minnt er á bleika messu sem verður í Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 4. október kl. 20.
Hægt er að kaupa bleikar slaufur og hengja t.d. á staura, einnig er hægt að fá penna og slaufur í jakka m.a. í Kjörbúðunum.