Ungt fólk og lýðheilsa

Málsnúmer 2605050

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 163. fundur - 17.08.2026

Kynning á ungmennaþingi UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráð Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.-20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.

Ráðstefnan er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára til að staldra við, efla sjálft sig og tengjast öðru fólki á svipuðu reki í öruggu og styðjandi umhverfi án þess að þurfa að tilheyra ákveðnu félagi eða hópi.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst. Hún vísar til þess hvernig við getum eflt andlega, líkamlega og félagslega heilsu okkar í heimi þar sem áreiti, hraði og skjánotkun hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf.

Á ráðstefnunni fá þátttakendur tækifæri til að staldra við, skoða eigin líðan og átta sig á því hvað nærir þau og hvað dregur úr orku. Í gegnum vinnustofur, samtal og samveru verður unnið með sjálfsmynd, lífsstíl og tengsl - bæði í stafrænum heimi og utan hans.
Markmið ráðstefnunnar er að styrkja ungt fólk til að hafa áhrif á eigið líf og sitt nærsamfélag. Þátttakendur öðlast aukið sjálfstraust, læra að koma skoðunum sínum á framfæri og taka með sér reynslu og tengsl sem geta haft áhrif til framtíðar.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10.09.2026

Ráðstefnan ungt fólk og lýðheilsa verður haldin á Reykjum í Hrútafirði.
Lagt fram til kynningar
Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.- 20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og er yfirskrift hennar í ár Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst.

Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á andlega, líkamlega og félagslega heilsu ungs fólks, sjálfsmynd, lífsstíl, tengsl og áhrif stafræns umhverfis á daglegt líf. Markmiðið er að styrkja ungt fólk, efla sjálfstraust þess og þátttöku og hvetja það til að hafa áhrif á eigið líf og nærsamfélag.

Þar sem mjög stuttur tími er til stefnu mun ekki verða skipulagt af hálfu sveitarfélagsins að fara en ungmennin hvött ef þau hefðu tök á að sækja ráðstefnuna.

Meðal gesta og fyrirlesara verða Ólafur Stefánsson og Skúli Bragi Geirdal.