Farsældarráð SSNE

Málsnúmer 2603031

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 46. fundur - 18.03.2026

Beiðni frá Farsældarráði SSNE um kynningu frá ungmennaráði.
Samþykkt
Óskað hefur verið eftir að Ungmennaráð Fjallabyggðar verði með kynningu á starfi sínu þann 8. apríl hjá Farsældarráði Norðurlands eystra.
Ungmennaráð mun kynna starfsemi ráðsins.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Farsældarráði SSNE. Ráðið vinnur um þessar mundir að fjögurra ára aðgerðaáætlun um farsæld barna í landshlutanum. Farsældarráð safnar nú upplýsingum um stöðu barna og ungmenna á Norðurlandi eystra og mun byggja forgangsröðun aðgerða á þeim gögnum.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir erindi frá Farsældarráði Norðurlands eystra sem send voru til ungmennaráða landshlutans.
Ungmennaráð mun svara spurningunum á næsta fundi.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Fyrir liggur áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra.
Samþykkt
Áætlunin markar sameiginlegar áherslur landshlutans í málefnum barna og fjölskyldna til ársins 2030. Henni er ætlað að vera sameiginlegt leiðarljós fyrir áframhaldandi samstarf og þróun þjónustu í þágu farsældar barna, með það að markmiði að styrkja samhæfingu, snemmtækan stuðning og markvissa nýtingu þeirra tækifæra sem felast í auknu samtarfi þvert á kerfi og stofnanir. Bæjarráð óskar eftir að fá verkefnastjóra Farsældarráðs Norðurlands eystra til að kynna áætlunina.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra.
Fyrir fundinum liggur áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra. Áætlunin er unnin á grundvelli laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er liður í lögbundnu hlutverki farsældarráða samkvæmt 5. gr. laganna. Við gerð hennar var byggt á stefnumótun stjórnvalda um farsæld barna, niðurstöðum farsældarþings og víðtæku samráði við sveitarfélög, þjónustuveitendur ríkisins og aðra samstarfsaðila á Norðurlandi eystra.

Áætlunin markar sameiginlegar áherslur landshlutans í málefnum barna og fjölskyldna til ársins 2030. Henni er ætlað að vera sameiginlegt leiðarljós fyrir áframhaldandi samstarf og þróun þjónustu í þágu farsældar barna, með það að markmiði að styrkja samhæfingu, snemmtækan stuðning og markvissa nýtingu þeirra tækifæra sem felast í auknu samstarfi þvert á kerfi og stofnanir.

Nefndin fagnar því að komin sé heildstæð áætlun um jafn mikilvæg mál og leggur til að málið verði unnið áfram m.t.t. aukins umfangs og kostnaðar.