Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

213. fundur 01. júní 2017 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir formaður, D lista
  • Guðmundur J Skarphéðinsson aðalmaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Valur Þór Hilmarsson aðalmaður, S lista
  • Ásgrímur Pálmason áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Deiliskipulag miðbæjar Siglufjarðar

Málsnúmer 1601077Vakta málsnúmer

Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir miðbæ Siglufjarðar.

Nefndin samþykkir að auglýsa tillöguna í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Breyting á Aðalskipulagi-Þormóðseyri

Málsnúmer 1609086Vakta málsnúmer

Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 var auglýst frá 10.apríl - 24.maí 2017, í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Lagðar fram umsagnir frá Vegagerðinni, Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar, Dalvíkurbyggð og Sveitarfélaginu Skagafirði sem gera ekki athugasemd við tillöguna.

Nefndin samþykkir skipulagstillöguna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

3.Deiliskipulag-lóðir norðan Hafnarbryggju Þormóðseyri, Siglufirði

Málsnúmer 1611052Vakta málsnúmer

Tillaga deiliskipulags tveggja athafnalóða norðan Hafnarbryggju, var auglýst frá 10.apríl - 24.maí 2017, í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Umsögn barst frá Vegagerðinni sem gerði ekki athugasemdir við tillöguna og ábendingar bárust frá Skipulagsstofnun. Eftirfarandi breytingar voru gerðar vegna ábendinga Skipulagsstofnunar:
Kafla 1.8 Almannaréttur, var bætt við greinargerðina. Göngustígur skilgreindur meðfram strandlínu og lóðir minnkaðar sem því nemur. Byggingareitir minnkaðir í línu við suðurhlið Tjarnargötu 2-4.

Nefndin samþykkir framlagða deiliskipulagstillögu og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

4.Umsókn um byggingarétt á lóðum við Eyrarflöt

Málsnúmer 1703070Vakta málsnúmer

Lagður fram breytingaruppdráttur fyrir deiliskipulag Eyrarflatar þar sem breyting er gerð á fyrirkomulagi gatna, lóða og byggingarreita sunnan núverandi byggðar við Eyrarflöt.

Nefndin samþykkir að auglýsa framlagða breytingu deiliskipulags í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

5.Hvanneyrarbraut 26 Siglufirði-umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1703026Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf húseigenda Hvanneyrarbrautar 26 þar sem fram koma þeirra sjónarmið vegna afgreiðslu 212.fundar skipulags- og umhverfisnefndar þar sem umsókn um byggingarleyfi var hafnað.

Nefndin áréttar fyrri afgreiðslu og ítrekar rétt húseigenda til að vísa niðurstöðu bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

6.Umsókn um lóð - Vesturtangi 18

Málsnúmer 1705015Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Skeljungs hf. um lóð að Vesturtanga 18 fyrir sjálfsafgreiðslustöð fyrirtækisins. Sé ekki hægt að verða við umsóknni er óskað eftir því að sveitarfélagið komi með tillögu að staðsetningu fyrir eldsneytisafgreiðsluna.

Beiðni Skeljungs hf. er hafnað, þar sem umræddri lóð hefur nú þegar verið úthlutað. Varðandi beiðni um tillögu að staðsetningu fyrir lóð undir sjálfsafgreiðslustöð með ofanjarðardísilsölutank þá er ekki gert ráð fyrir því í skipulagi þéttbýlisins á Siglufirði.

7.Málefni Hverfisgötu 17 Siglufirði

Málsnúmer 1506013Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísar umsókn um niðurrif á húsinu við Hverfisgötu 17, til skipulags- og umhverfisnefndar.

Nefndin samþykkir niðurrif hússins Hverfisgötu 17, Siglufirði.

8.Aðstöðuhús við Brimnes

Málsnúmer 1705018Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. 04.05.17 frá Helga Jóhannssyni um aðstöðuhús fyrir brimbrettafólk í Ólafsfirði.

Bæjarráð óskaði eftir kostnaðarmati á verkefninu frá deildarstjóra tæknideildar.

Nefndin óskar eftir kostnaðarmati og nánari útfærslu á tillögunni.

9.Umsókn um byggingarleyfi-svalir á Hólaveg 5 Siglufirði

Málsnúmer 1705082Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn húseiganda að Hólavegi 5, þar sem óskað er eftir leyfi til að byggja svalir við suðurhlið hússins.

Erindi samþykkt.

10.Fjarlægja drasl við Vetrarbraut 19a

Málsnúmer 1705029Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk um að drasl við Vetrarbraut 19a verði fjarlægt svo hægt sé með góðu móti að komast um Vetrarbrautina.

Tæknideild falið að láta fjarlægja umrætt drasl við Vetrarbrautina.

11.Rusl á víðavangi í Fjallabyggð

Málsnúmer 1704080Vakta málsnúmer

Lögð fram ábending um að umhverfið við Strandgötu í Ólafsfirði sé ábótavant vegna ýmiskonar lausamuna á lóðum við götuna. Óskað er eftir því að eitthvað verði gert til að bæta ásýnd götunnar.

Tæknideild falið að senda lóðarhöfum bréf og óska eftir tafarlausum úrbótum.

12.Umsókn um byggingarleyfi-þakgluggar á Túngötu 40 Siglufirði

Málsnúmer 1705083Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn húseiganda við Túngötu 40 þar sem sótt er um leyfi til að setja 6 Velux þakglugga, þrjá á hvora hlið hússins.

Erindi samþykkt.

13.Umsókn um skráningu stækkunar á landeign í landi Hlíðar, Ólafsfirði

Málsnúmer 1703078Vakta málsnúmer

Landeigandi Hlíðar óskar eftir umsögn nefndarinnar vegna landaskipta á Neskotslóðinni í landi Hlíðar í Ólafsfirði.

Nefndin gerir ekki athugasemd við landaskipti á Neskotslóðinni í landi Hlíðar í Ólafsfirði.

14.Umsókn um leyfi fyrir skilti á Þjóðlagahátíð

Málsnúmer 1706003Vakta málsnúmer

Aðstandendur Þjóðlagahátíðar á Siglufirði óska eftir leyfi til að setja skilti gengt Samkaup sem auglýsir að Þjóðlagahátíðin sé í gangi.

Erindi samþykkt.

15.Umsókn um byggingarleyfi-Aðalgata 15 Siglufirði

Málsnúmer 1706005Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um leyfi til að útbúa forstofu á NV-horni hússins við Aðalgötu 15, Siglufirði.

Nefndin samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki húsfélags, þar sem um fjöleignarhús er að ræða. Einnig bent á að uppfæra þarf eignaskiptasamning í samræmi við umsóknina.

16.Matslýsing vegna kerfisáætlunar 2017-2026

Málsnúmer 1705030Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar matslýsing vegna kerfisáætlunar Landsnets 2017-2026.

Fundi slitið - kl. 19:00.