Rusl á víðavangi í Fjallabyggð

Málsnúmer 1704080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 212. fundur - 03.05.2017

Umræða tekin um rusl á lóðum og á víðavangi í Fjallabyggð. Tæknideild falið að senda hvatningarbréf til lóðarhafa þar sem óviðunandi ástand er.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 213. fundur - 01.06.2017

Lögð fram ábending um að umhverfið við Strandgötu í Ólafsfirði sé ábótavant vegna ýmiskonar lausamuna á lóðum við götuna. Óskað er eftir því að eitthvað verði gert til að bæta ásýnd götunnar.

Tæknideild falið að senda lóðarhöfum bréf og óska eftir tafarlausum úrbótum.